Skoðun

Konur láta lífið og karlar fá knús

Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Það er ekkert leyndarmál að kynbundið ofbeldi er vandamál á Íslandi. Um 42% kvenna á aldrinum 18-80 ára hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi á sinni lífsleið samkvæmt rannsókn sem gerð var árið 2010. Þessi tala hefur lítið sem ekkert breyst,15 árum seinna.

Það hefur margoft verið skrifað og talað um afleiðingar ofbeldis. Hver þolandinn á fætur öðrum berskjaldar sig fyrir alþjóð í þeirri veiku von um að ráðamenn landsins vakni. Við erum enn að berjast fyrir lágmarks virðingu fyrir brotaþolum í kerfinu og enginn vill taka ábyrgð. Á stjórnvöldum hvílir sú skylda að tryggja öryggi samfélagsins og borgaranna og standa vörð um grundvallarréttindi einstaklinga. Ég spyr þá, hvar er þetta öryggi fyrir þolendur kynbundins ofbeldis?

Endalausar afsakanir

Mannekla er afsökunin hjá lögreglunni og fyrrum ríkisstjórn bar fyrir sig niðurskurð í fjárlögum. Brotaþolar sitja svo uppi með niðurfelld mál vegna vangetu embætta til að rannsaka málin og gerendur sleppa.

Vitandi allt þetta er samt alltaf verið að tala um að við þurfum að taka á þessum málum, að það sé óásættanlegt að réttarkerfið okkar virki ekki sem skyldi og að kynbundið ofbeldi þurfi að uppræta!

20% karla eru ofbeldismenn

Hvað með að karlar bara hætti að beita ofbeldi? Er það of mikið? Ef þeir beita ofbeldi, er það galin hugmynd að þeir taki ábyrgðina og fái ekki skilorðsbundna dóma á silfurfati?

Öryggi og líf kvenna er í húfi.

Ég upplifi stundum að karlmenn séu upp til hópa týndir. Þeim finnst erfitt að 20% þeirra séu ofbeldismenn en finnst þó oft ekkert erfitt að horfa í augu kvenna, vitandi að það séu 42% líkur á að þær hafi eða verði fyrir ofbeldi af hendi karlmanns. Konur eru ekki að hugsa út í hvort þær verði fyrir ofbeldi heldur hver muni beita þær ofbeldi. Verður það vinur? Kærasti? Frændi? Vinnufélagi?

Ábyrgðin á kolröngum stað

Nýlega las ég í fjölmiðlum að forseti Íslands hefur hrundið af stað verkefni sem hún kallar Riddara kærleikans þar sem hún m.a. leiddi saman ólíka karlmenn í umræðuhóp.

Í samtalinu kom fram að karlmenn þyrftu bara meiri kærleika og knús. Á sama tíma fara menn í skóla barnanna okkar og segja þeim að herða sig og hætta að væla. Hvort er það? Eigum við að herða börnin og knúsa karlana ? Ekki knúsa börnin og gera karla ábyrga ?

Það sem karlmenn þurfa er að taka sig saman, taka þátt í að uppræta nauðgunarmenningu í sínu daglega lífi og kalla hvern annan út. Það er ekki í verkahring kvenna að sjá til þess að karlmenn beiti ekki ofbeldi.

Á meðan Riddarar kærleikans knúsast á Bessastöðum eru konur raunverulega að láta lífið vegna afleiðinga kynbundins ofbeldis.

Höfundur er stjórnarformaður Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.

Heimildir:

https://skemman.is/bitstream/1946/10724/1/26012011_Ofbeldi_a_konum.pdf

https://stigamot.is/wp-content/uploads/2023/10/Stigamot_Ofbeldismenn_2023-1.pdf

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/05/22/margir_logreglumenn_eru_i_rauninni_i_tveimur_storfu/

https://www.visir.is/g/20242574201d/nidur-skurdur-skerdir-thjonustu-og-ognar-oryggi




Skoðun

Sjá meira


×