Innlent

Aukið fjár­magn til að stytta bið

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Alma Möller heilbrigðisráðherra ætlar að setja meiri pening í þau úrræði sem eru til staðar meðal annars til að tyggja að ekki þurfi að loka þeim í sumar.
Alma Möller heilbrigðisráðherra ætlar að setja meiri pening í þau úrræði sem eru til staðar meðal annars til að tyggja að ekki þurfi að loka þeim í sumar. Vísir/Vilhelm

Heilbrigðisráðherra ætlar að setja auka þrjú hundruð og fimmtíu milljónir króna í baráttuna við vímuefnavanda. Með því vonast ráðherrann til að hægt verði að stytta bið eftir úrræðum og koma í veg fyrir sumarlokanir.

Sérstök umræða var á Alþingi fyrir hádegi um áfengis- og vímuefnavandann. Málshefjandi var Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar sem vildi með umræðunni heyra sýn ríkisstjórnarinnar á þessi mál. Sigmar telur mikilvægt að endurskipuleggja meðferðarkerfið, koma í veg fyrir lokanir stofnana yfir sumartímann og stytta biðlista.

„Það eru tvö þúsund manns sem að biðja um pláss á Vogi á hverju einasta ári, tvö þúsund og sjö hundruð manns, stór hópur til viðbótar leitar beint í önnur úrræði eða reynir að sækja sér bata með öðrum hætti. Það getur gerst á Landspítalanum. Við erum líka með Hlaðgerðarkot og Krýsuvík. Þarna alls staðar eru langir biðlistar. Fólk sem kemst í þjónustu fær að mörgu leyti mjög góða þjónustu hérna á Íslandi en biðlistarnir eru allt of langir. Ábyrgðin á þessu liggur í áratuga vanmati stjórnvalda á afleiðingum þessa sjúkdóms. Hún liggur hjá okkur stjórnmálamönnunum og hún liggur hjá fjárveitingarvaldinu en ekki fagfólkinu og meðferðarstöðvunum. Það vinna allir af hugsjón í þessum málaflokki en við þurfum ofureinfaldlega að gera betur.“

Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði fíknivandann fyrst og fremst heilbrigðisvanda en starfshópur vinni nú að heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum. Þá ætli hún að setja meira fjármagn í málaflokkinn.

„Ég mun því leggja til að í fjáraukalögum í þessu þingi verði að auki veitt þrjú hundruð og fimmtíu milljónum til að styrkja og auka fyrirliggjandi úrræði, til að stytta bið og tryggja að ekki þurfi að koma til sumarlokanna og er ríkisstjórnin einhuga um þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×