Innlent

Ná ekki í hundrað milljónir með fækkun í Hæsta­rétti

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mun ekki beita sér fyrir fækkun hæstaréttardómara, líkt og hagræðingarhópur hefur lagt til við ríkisstjórnina.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mun ekki beita sér fyrir fækkun hæstaréttardómara, líkt og hagræðingarhópur hefur lagt til við ríkisstjórnina. Vísir/Vilhelm

Dómsmálaráðherra mun ekki beita sér fyrir því að dómurum við Hæstarétt verði fækkað, líkt og hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar leggur til. Aðrar tillögur sem snúa að málefnasviði dómsmálaráðuneytisins falla ráðherra betur í geð. 

Eina af 60 tillögum sem hagræðingarhópur skilaði af sér til ríkisstjórnar fólst í því að Hæstaréttardómurum yrði fækkað úr sjö í fimm, og hagræðing með aðgerðinni metin hundrað milljónir króna á árunum 2026 til 2030.

Hlutverk Hæstaréttar vissulega breytt

Benedikt Bogason, forseti réttarins, sagði í fréttum okkar í gær að slík fækkun væri af og frá, fjöldi dómara við Hæstarétt eftir tilkomu Landsréttar árið 2018 hafi verið ákveðinn að vel athuguðu máli. Vanvirðing fælist í því að leggja tillöguna fram án samráðs við Hæstarétt.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir vissulega rétt að Hæstiréttur hafi breytt hlutverk eftir stofnun Landsréttar.

„Það er auðvitað þannig að í ákveðnum málum getur komið til þess að dómarar þurfi að vera sjö, þannig að ég sé nú ekki fyrir mér að þetta sé að breytast,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Áttu þá við að þú sjáir ekki fyrir þér að þessi tillaga nái fram að ganga?

„Þetta eru auðvitað tillögur sem koma fram í þessum hópi, þetta eru ekki tillögur frá dómsmálaráðuneytinu. Ég fagna þessum tillögum, þarna eru til dæmis tillögur um að fækka eigi sýslumannsembættum, ég hef lagt fram frumvarp um það. En ég sé í fljótu bragði ekki rökin fyrir því að fækka dómurum Hæstaréttar, nei.“

Líst vel á aðrar tillögur

Þorbjörg segir að sér lítist þó vel á fleiri tillögur hópsins.

„Þarna er tekið til skoðunar hvort eigi að breyta útfærslum á jafnlaunavottun. Það finnst mér vel geta komið til greina, til þess að einfalda fyrirtækjum að mæta þessum jafnréttissjónarmiðum, ég er opin fyrir því.“

Nú sé það verkefni hvers ráðherra að skoða tillögurnar ítarlega og taka afstöðu til þeirra.

„En eins og ég segi: Hæstiréttur er ýmist skipaður fimm eða sjö dómurum. Því verður ekki svo auðveldlega breytt og ég hef ekki í hyggju að beita mér fyrir slíkum breytingum,“ segir Þorbjörg Sigríður. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×