Golf

Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ryan Peake lék samtals á 23 höggum undir pari á Opna nýsjálenska mótinu og var einu höggi á undan næstu mönnum.
Ryan Peake lék samtals á 23 höggum undir pari á Opna nýsjálenska mótinu og var einu höggi á undan næstu mönnum. afp/Michael THOMAS

Ástralinn Ryan Peake tryggði sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi með því að vinna Opna nýsjálenska meistaramótið. Hann sat í fangelsi á sínum yngri árum.

Þegar Peake var 21 árs var hann hluti af mótorhjólagenginu the Rebels og fékk fimm ára fangelsisdóm fyrir alvarlega líkamsárás.

Peake sneri hins vegar blaðinu við og segir að golfið hafi átt stóran þátt í að koma sér á beinu brautina.

„Ég er hálf orðlaus núna. Þetta breytir öllu. Þetta er rosaleg saga, rosalegt augnablik,“ sagði Peake eftir að hann vann Opna nýsjálenska mótið.

„Ég vissi alltaf að ég gæti þetta. Það var bara spurning um hvenær ég myndi gera það. Þetta er það sem ég geri núna. Ég vil bara vera hér og spila golf.“

Peake þótti efnilegur kylfingur þegar hann yngri. Og meðan hann sat inni kom þjálfarinn Ritchie Smith að máli við hann og fékk hann til að byrja að spila golf á nýjan leik þegar hann yrði látinn laus.

Auk þess að vinna sér þátttökurétt á Opna breska, sem fer fram á Norður-Írlandi 17.-20. júlí, fékk Peake 99.500 pund í verðlaunafé. Það jafngildir rúmlega sautján og hálfri milljón íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×