Innlent

Nýr meiri­hluti muni ekki vaða í stærri deilu­mál

Bjarki Sigurðsson skrifar
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur.
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur.

Samkvæmt heimildum fréttastofu verður oddviti Samfylkingar kjörinn borgarstjóri á fundi borgarstjórnar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Stjórnmálafræðingur segir það krefjandi fyrir nýjan borgarstjóra að halda svo breiðu samstarfi gangandi. 

Nýr meirihluti Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna, Sósíalista og Flokks fólksins verður staðfestur á aukafundi borgarstjórnar í dag. Borgarfulltrúar greiða þar atkvæði um nýjan forseta borgarstjórnar og nýjan borgarstjóra. Heimildir fréttastofu herma að það verði Heiða Björg Hilmisdóttir oddviti Samfylkingar sem tekur við af Einari Þorsteinssyni.

Oddvitar flokkanna fimm gáfu ekki kost á viðtali fyrir hádegisfréttir. Þær funda með baklandi sínu seinna í dag þar sem tillögurnar verða kynntar.

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir merkilegt að eftir daginn í dag verði í fyrsta sinn bara konur í embættum borgarstjóra, forseta, forsætisráðherra og biskups. Nýjum borgarstjóra bíði áskoranir.

„Þetta er auðvitað flókið að halda saman svona mörgum ólíkum stjórnmálaflokkum sem spanna svona vítt svið í stjórnmálunum. Það má nú kannski segja að Dagur B. Eggertsson hafi sýnt töluverða stjórnlist með því að halda saman ólíkum meirihlutum í borginni. Það sést kannski best á því hvernig fyrrverandi meirihluti féll skömmu eftir að hann var farinn. Þannig það mun reyna á stjórnlist verðandi borgarstjóra,“ segir Eiríkur. 

Það veki athygli að Píratar, vinstri græn og Sósíalistar séu utan þings.

„Allt þetta hefur ákveðin áhrif á samsetninguna og hvernig hægt er að stýra þessu fleyi. En á móti kemur að það er stutt í sveitarstjórnarkosningar og verkefni nýs meirihluta verður að brúa þann tíma,“ segir Eiríkur. 

Meirihlutinn muni að öllum líkindum þrauka fram að kosningum.

„Að það sé lagt upp með það verkefni að brúa þetta bil, takast á við einhver ákveðin grundvallarmál en vísa öðrum stærri deilumálum til umræðna í aðdraganda kosninga,“ segir Eiríkur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×