Sport

Magnað heims­met í hálfu mara­þoni

Sindri Sverrisson skrifar
Jacob Kiplimo hefur unnið til fjölda verðlauna í hlaupum og meðal annars bronsverðlaun í 10.000 metra hlaupi á Ólympíuleikum, í Tókýó 2021.
Jacob Kiplimo hefur unnið til fjölda verðlauna í hlaupum og meðal annars bronsverðlaun í 10.000 metra hlaupi á Ólympíuleikum, í Tókýó 2021. Getty/Tim Clayton

Úgandamaðurinn Jacob Kiplimo setti nú í morgun nýtt og stórglæsilegt heimsmet í hálfu maraþoni þegar hann vann afar fjölsótt hlaup í Barcelona. Sá sem átti heimsmetið missti það tveimur mínútum eftir stórkostlegt 10 kílómetra hlaup sitt annars staðar á Spáni.

Þessi 24 ára gamli hlaupari varð fyrstur allra í sögunni til þess að hlaupa hálft maraþon á innan við 57 mínútum en hann kom í mark á 56 mínútum og 41 sekúndu.

Hann bætti þar með heimsmet Yomif Kejelcha um heilar 49 sekúndur. Til marks um hversu sturluð staðreynd það er þá er það mesti munur sem orðið hefur á nýju og fyrra heimsmeti í hálfmaraþoni, með vottun alþjóða frjálsíþróttasambandsins.

Jacob Kiplimo með fána Úganda eftir að hafa slegið heimsmetið í hálfmaraþoni með mögnuðum hætti í Barcelona í dag.Getty/Lorena Sopena

Kiplimo átti áður heimsmetið frá því að hann sló það í Lissabon í nóvember 2021, með því að hlaupa á 57:31, en Kejelcha tók það af honum í Valencia í október síðastliðnum með því að bæta það um eina sekúndu.

Aðstæður voru hinar bestu í Barcelona, 13 gráðu hiti og enginn vindur, og hljóp Kiplimo fyrstu 15 kílómetrana á 39 mínútum og 47 sekúndum.

Missti heimsmetið tveimur mínútum eftir glæstan sigur

Hinn eþíópíski Kejelcha var einnig á ferðinni í dag, í 10 kílómetra götuhlaupi í Castellón de la Plana, um 300 kílómetrum frá Barcelona. Hann vann hlaupið með glæsibrag og kom í mark á 27 mínútum og 30 sekúndum, sem skilar honum í 2. sæti á lista yfir bestu götuhlaupara allra tíma.

Svo merkilega vill til að aðeins tveimur mínútum eftir að Kejelcha var kominn í mark í Castellón bárust þær fregnir frá Barcelona að hann hefði misst heimsmetið í hálfmaraþoni til Kiplimo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×