Innlent

Átta af ellefu um­sækj­endum taldir hæfir í em­bættið

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun skipa háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs að loknum kosningunum.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun skipa háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs að loknum kosningunum. Vísir/Vilhelm

Ellefu umsóknir bárust um embætti rektors Háskóla Íslands fyrir næsta kjörtímabil en átta umsækjendur voru taldir uppfylla skilyrði um embættisgengi. Rektorskjör fer fram á næstu vikum. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands, en nýr rektor tekur við embætti þann 1. júlí. Sá er kjörinn til fimm ára. Umsóknarfrestur til embættisins rann út síðasta föstudag. Umsækjendurnir voru eftirfarandi.

  • Björn Þorsteinsson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði Háskóla Íslands
  • Ganna Progrebna, prófessor, Executive Director of AI and Cyber Futures Institute, Bathurst, Orange, Sydney, Canberra, Ástralíu
  • Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og aðstoðarrektor vísinda og samfélags
  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, dósent við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
  • Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
  • Mahdi Teymuri Garakani, rannsóknamaður við Institute for Research in Fundamental Sciences, Teheran, Íran
  • Oluwafemi E Idowu, prófessor í Healthcare Leadership and Strategy, og Chief Academic Officer / Provost við Oxford Business College, Oxford, Englandi
  • Remco Polman, Pro Vice-Chancellor Research & Executive Dean, við Institute of Health and Wellbeing, Federation University, Melbourne, Ástralíu
  • Sashidharan Komandur, dósent við Inland Norway University of Applied Sciences (HINN), Rena, Noregi
  • Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
  • Theresa C. Balser, prófessor við Raunvísindadeild University of Calgary, Calgary, Alberta, Kanada

Í tilkyinningunni segir að Háskólaráð hafi fundað í dag og farið yfir niðurstöðu millifundanefndar ráðsins sem falið var að meta hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi. 

Samkvæmt reglum skólans eru þeir einir embættisgengir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Niðurstaðan varð sú að átta umsækjendur teljast uppfylla skilyrði um embættisgengi. Þau eru:

  • Björn Þorsteinsson, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði á Hugvísindasviði Háskóla Íslands
  • Ganna Progrebna, prófessor, Executive Director of AI and Cyber Futures Institute, Bathurst, Orange, Sydney, Canberra, Ástralíu
  • Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og aðstoðarrektor vísinda og samfélags
  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, dósent við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
  • Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
  • Oluwafemi E Idowu, prófessor í Healthcare Leadership and Strategy, og Chief Academic Officer / Provost við Oxford Business College, Oxford, Englandi
  • Remco Polman, Pro Vice-Chancellor Research & Executive Dean, við Institute of Health and Wellbeing, Federation University, Melbourne, Ástralíu
  • Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands

Háskólaráð hefur jafnframt skipað kjörstjórn vegna rektorskosninganna. Í kjörstjórn sitja: Víðir Smári Petersen, prófessor við Lagadeild, formaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við Lagadeild, Ebba Þóra Hvannberg, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Gréta Dögg Þórisdóttir, nemandi við Lagadeild, Jens Ingi Andrésson, nemandi við Lagadeild, og Sverrir Guðmundsson, verkefnisstjóri á vísinda- og nýsköpunarsviði.

Kosið verður í embættið ekki síðar en 21. mars. Atkvæðisrétt hefur starfsfólk í yfir 37 prósent starfshlutfalli og nemendur sem skrásettir eru í Háskóla Íslands við upphaf kjörfundar. Atkvæði starfsfólks vega 70 prósent og atkvæði nemenda 30 prósent. 

Atkvæðisrétt hefur einnig akademískt starfsfólk á samstarfsstofnunum Háskóla Íslands, sem starfa á grundvelli sérlaga og fara þau með hálft atkvæði. Stofnanirnar sem um ræðir eru Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og Landsbókasafn – háskólabókasafn.

Nánar má lesa um framkvæmd rektorskjörsins í reglum fyrir Háskóla Íslands á vef HÍ. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×