Albert fékk ekki að spila í leiknum sem byrjaði í desem­ber en lauk í febrúar

Albert Guðmundsson fylgdist með á bekknum þegar Fiorentina vann öruggan sigur.
Albert Guðmundsson fylgdist með á bekknum þegar Fiorentina vann öruggan sigur. Getty/Gabriele Maltinti

Fiorentina vann 3-0 stórsigur á Internazionale í ítölsku Seríu A deildinni í fótbolta í kvöld.

Albert Guðmundsson fékk ekki að spila en liðsfélagar hans fóru á kostum.

Moise Kean skoraði tvö mörk og Luca Ranieri gerði eitt. Kean skoraði annað markið á 68. mínútu og þriðja markið á 89. mínútu. Ranieri kom Fiorentina í 1-0 á 59. mínútu en í fyrri hálfleik var mark dæmt af Inter vegna rangstöðu.

Þetta var sérstakur leikur því honum var hætt í desember þegar Edoardo Bove, liðsfélagi Alberts, hneig niður. Leikurinn í kvöld byrjaði á sautjándu mínútu.

Albert var á bekknum í þeim leik og byrjaði því ekki í kvöld eins og í síðustu leikjum. Hann kom síðan ekki við sögu.

Sigurinn kom Fiorentona upp í fjórða sæti deildarinnar en Inter er áfram í öðru sæti. Þetta var aðeins annað deildartap Inter á tímabilinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira