Erlent

Stol­ten­berg með ó­vænta endur­komu í norskum stjórn­málum

Atli Ísleifsson skrifar
Jens Stoltenberg var forsætisráðherra Noregs á árunum 2005 til 2013 og framkvæmdastjóri NATO á árunum 2014 til 2024.
Jens Stoltenberg var forsætisráðherra Noregs á árunum 2005 til 2013 og framkvæmdastjóri NATO á árunum 2014 til 2024. EPA

Jens Stoltenberg mun taka við embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn norska Verkamannaflokksins í dag.

Norskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun, en forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre mun í dag skipa nýja ráðherra eftir að Miðflokkurinn sleit stjórnarsamstarfinu á dögunum. Átta ráðherrar nýir verða því kynntir til leiks.

Stoltenberg mun taka við embætti fjármálaráðherra af Trygve Slagsvold Vedum, formanni Miðflokksins.

Stoltenberg var forsætisráðherra Noregs á árunum 2005 til 2013 og framkvæmdastjóri NATO á árunum 2014 til 2024. Hann var formaður Verkamannaflokksins á árunum 2002 til 2014.

Verkamannaflokkurinn og Miðflokkurinn mynduðu stjórn árið 2021 en deildu hart um innleiðingu á þremur tilskipunum Evrópusambandsins sem eru hluti af svonefndum fjórða orkupakka þess. Verkamannaflokkurinn vildi innleiða þær strax en Miðflokkurinn talaði fyrir því að nánari samvinnu við Evrópu í orkumálum yrði hafnað.

Miðflokkurinn ákvað á endanum að slíta stjórnarsamstarfinu og mun Verkamannaflokkurinn því að óbreyttu stýra minnihlutastjórn fram að þingkosningum sem munu fara fram í Noregi þann 8. september næstkomandi.


Tengdar fréttir

Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála

Norska ríkisstjórnin er sprungin eftir að þingflokkur Miðflokksins ákvaða að slíta samstarfi við Verkamannaflokkinn í dag. Leiðtogi flokksins segist ekki vilja vilja færa Evrópusambandinu aukin völd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×