Innlent

Fjögur í fram­boði til for­manns VR

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þau fjögur eru í framboði til formanns VR.
Þau fjögur eru í framboði til formanns VR. Samsett

Fjögur framboð bárust til formanns VR. Framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Kosningar hefjast klukkan tíu að morgni fimmtudagsins 6. mars og þeim lýkur klukkan tólf á hádegi fimmtudaginn 13. mars. Einnig verður kosið í stjórn, varastjórn og trúnaðarráð.

Í ár er kosið sjö sæti í stjórn til fjögurra ára og þrjú sæti í varastjórn til tveggja ára í einstaklingskosningu. Þá á samkvæmt lögum félagsins einnig að stilla um 41 manns til trúnaðarráðs til fjögurra ára.

Þau sem í framboði eru til formanns eru Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson lögfræðingur á kjarasviði VR.

Sautján í framboði í stjórn

Í tilkynningu frá VR kemur fram að 17 framboð hafi borist til stjórnar. Öll framboð hafa verið úrskurðuð lögleg. Þau sem eru í framboði til stjórnar eru í stafrófsröð Agatha María Magnússon, Andrea Rut Pálsdóttir, Birgitta Ragnarsdóttir, Eldar Ástþórsson, Guðmundur Ásgeirsson, Jennifer Schröder, Karl. F. Thorarensen, Kristján Gísli Stefánsson, María de Araceli Quintana, Mateusz Gabríel Kowalczyk Róbertsson, Ólafur Reimar Gunnarsson, Selma Björk Grétarsdóttir, Styrmir Jökull Einarsson, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Tómas Elí Guðmundsson, Vala Ólöf Kristinsdóttir og Þórir Hilmarsson.

Ekkert mótframboð barst gegn lista stjórnar og trúnaðarráðs í trúnaðarráð félagsins og telst hann því löglega kjörinn samkvæmt tilkynningu VR.


Tengdar fréttir

Býður sig fram til formanns VR

Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR í kosningum sem fram fara í mars næstkomandi.

Þorsteinn Skúli tekur formannsslaginn

Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR. Þorsteinn Skúli er lögfræðingur og starfaði lengi hjá VR sem sérfræðingur á kjarasviði.

Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“

Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi og nú ráðgjafi hjá Aton hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns VR. Hann býst við harðri baráttu en nú þegar hafa nokkrir frambjóðendur gert vart við sig.

Halla vill leiða VR áfram

Halla Gunnarsdóttir, sem tók við formennsku í VR eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing, mun sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstól. Formannskjör fer fram í mars. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×