Lífið

Seldist upp á einni mínútu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dagný Dögg Bæringsdóttir og Ívar Guðmundsson voru í sínu besta skapi.
Dagný Dögg Bæringsdóttir og Ívar Guðmundsson voru í sínu besta skapi. Gunnar Jónatansson

Tólf hundruð manns mættu og skemmtu sér saman þegar Fram boðaði til Þorrablóts 113 í Framhöllinni í Grafarholti um helgina. Þar voru Framsóknarmenn og borgarfulltrúar atkvæðamiklir en það seldist upp á þorrablótið á einni mínútu og var stemningin eftir því.

Meðal þeirra sem létu sjá sig voru fyrrverandi ráðherrar og þingmenn Framsóknar þau Lilja Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Einar Þorsteinsson borgarstjóri lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og það gerðu kollegar hans í borgarstjórn þeir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og Helgi Áss Grétarson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ekki heldur.

Þá voru þar líka fjölmiðlamenn á borð við Ívar Guðmundsson útvarpsmann á Bylgjunni og Gísli Freyr Valdórsson umsjónarmaður Þjóðmála sem gert hefur gott mót í hlaðvarpsheimum undanfarið. Meðal þeirra sem stigu á svið í Grafarholti voru Steindi og Auddi og Aron Can. Jóhanna Guðrún og Bandmenn létu sig heldur ekki vanta en Hljóð X sá um hljóðið og Jói í Múlakaffi um matinn.

Klassískt að taka mynd til baka af ljósmyndaranum!Gunnar Jónatansson

Þorramatur bætir og kætir, það veit handboltakempan hárprúða Rúnar Kárason.Gunnar Jónatansson

Framsóknarhjónin Einar Þorsteinsson, Milla Ósk Magnúsdóttir, Lilja Alfreðs og Magnús Óskar Hafsteinsson voru í stuði.Gunnar Jónatansson

Helgi Áss Grétarsson og Kjartan Magnússon skælbrosandi.Gunnar Jónatansson

„Hey, hvernig væri ef þú fengir Stefán Einar í næsta þátt af Þjóðmálum?“Gunnar Jónatansson

Stuð, stuð, þrumu þrumustuð.Gunnar Jónatansson

Stilla sér upp og einn, tveir og hlæja! Handboltafólk í miklum gír.Gunnar Jónatansson

Einar Þorsteinsson og Lilja Alfreðsdóttir í Framsóknarskapi í Framheimilinu.Gunnar Jónatansson

Fögur lítil diskódís upp úr djúpinu...Gunnar Jónatansson

Það er skemmtilegast að vera fremstur, fyrir framan sviðið.Gunnar Jónatansson

Jóhanna Guðrún reif þakið af húsi Lambhagahallarinnar.Gunnar Jónatansson

Skál í boðinu!Gunnar Jónatansson

Mynd með borgarstjóra ✓Gunnar Jónatansson

Það ætlaði allt að tryllast þegar Bandmenn stigu á svið.Gunnar Jónatansson

Ásmundur Einar í stuði með dóttur sinni.Gunnar Jónatansson

Auddi og Steindi voru í stuði.Gunnar Jónatansson

Aron Can var að sjálfsögðu í góðu skapi þetta kvöld, eins og öll önnur kvöld.Gunnar Jónatansson

Sjá má fleiri myndir af glæsilegum gestum þorrablótsins hér fyrir neðan:

Ungar Framstelpur í banastuði.Gunnar Jónatansson



Gunnar Jónatansson



Gunnar Jónatansson

Gréta María Grétarsdóttir og Jón V. Ágústsson áttu erfitt með að setja prís á gleðina.Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Gunnar Jónatansson

Tengdar fréttir

Ekki bara þorrablót heldur líka Reifiblót

Það var mikil stemning og gleði meðal Hornfirðinga og nærsveitunga á Þorrablóti Hafnar sem var haldið í íþróttahúsi bæjarins síðastliðið laugardagskvöld. Um 500 manns mættu á blótið og skemmtu sér langt fram eftir kvöldi.

Áslaug Arna og KFC á þorrablóti Aftureldingar

Mikil gleði var á þorrablóti Aftureldingar sem var haldið í íþróttahúsinu að Varmá síðastliðið laugardagskvöld. Um eitt þúsund Mosfellingar komu saman og blótuðu þorrann, en um er að ræða þeirra fjölmennasta þorrablót hingað til.

Heitasta fólk Kópavogs blótaði þorrann á stærsta þorrablótinu

Kópavogsblótið var haldið með pompi og prakt í Kórnum á föstudagskvöldið, á sjálfan bóndadaginn, en um var að ræða sameiginlegt þorrablót HK, Breiðabliks og Gerplu. Rúmlega 2500 manns mættu á blótið sem er það stærsta hingað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.