Innlent

Kennarar töldu samning í höfn en pólitík hafi spillt fyrir

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að það þurfi að vera samningsvilji svo hægt sé að boða til fundar. Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélagsins taldi kjarasamning kennara í höfn.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að það þurfi að vera samningsvilji svo hægt sé að boða til fundar. Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélagsins taldi kjarasamning kennara í höfn. Vísir

Ríkissáttasemjari segir að kjaradeila kennara og ríkis og sveitarfélaga hafi strandað á að kennarar hafi viljað meiri innspýtingar í virðismat á kennarastafinu en kom fram í innanhússtillögu hans. Fulltrúi í samninganefnd kennara taldi að kjaradeilan myndi leysast í gær. Hann telur að pólitík hafi spillt fyrir.

Ótímabundin verkföll hófust í fjórtán leikskólum og tímabundin í sjö grunnskólum í þrettán sveitarfélögum morgun. Nemendur eru alls um fimm þúsund. Fundi í kjaradeilu kennara við hið opinbera lauk í Karphúsinu í gærkvöldi án þess að samningar næðust.

Lengi verið súr stemning

Samninganefnd ríkis og sveitarfélaga hafði fallist á innanhússtillögu ríkissáttasemjara þar sem meðal annars var kveðið á að láta gera virðismat á störfum kennara. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að kennarar hafi viljað meiri innspýtingar í virðismatsvegferðina. Samninganefndir hafi fundað um lausnir alla helgina en ekki komið sér saman. Hann sé í stöðugu sambandi við fólk ef hægt sé að liðka fyrir í deilunni. Það þurfi að vera samningsvilji svo hægt sé að boða til fundar. Sagan af samskiptum kennara og launagreiðenda hafi lengi verið mjög súr. Það kosti vilja ef eigi að leysa úr slíkri stöðu og gerist ekki bara öðru megin.

Töldu samninga í höfn

Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórastjórafélags Íslands og fulltrúi í samninganefnd Kennarasambandsins er undrandi yfir að ekki hafi tekist að semja í gær. Engar viðræður séu í gangi.

„Það verður að segja eins og er að deilan brotnar upp og verkföll eru boðuð á sama tímapunkti og afar lítið bar á milli.  Við héldum að við værum að fara að ganga frá þessu. Við höfum aldrei verið jafn nærri því og í gær,“ segir Þorsteinn.

Aðspurður um hvað bar á milli svarar Þorsteinn:

„Ég ætla ekki að útskýra það að svo komnu máli,“ segir Þorsteinn.

Pólitík skorist í leikinn

Hann telur að pólitík hafi spilað inn í á lokametrunum.

„Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það að það var eitthvað annað en peningar sem réðu þarna úrslitum. Ég held að pólitík sé að spila þarna alltof mikinn þátt í þessari deilu. Það séu einhverjir út í samfélaginu sem berjst gegn því að það verði farið af stað í þetta verkefni sem við höfum verið að vinna að með viðsemjendum okkar,“ segir Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×