Handbolti

Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur af­rekað í hand­boltasögunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson fagnar hér innilega í sigri krótatíska landsliðsins á Frökkum í Zagreb í gærkvöldi.
Dagur Sigurðsson fagnar hér innilega í sigri krótatíska landsliðsins á Frökkum í Zagreb í gærkvöldi. Getty/Sanjin Strukic

Dagur Sigurðsson er einum sigri frá sögulegum þjálfarasigri eftir að hann kom króatíska landsliðinu í úrslitaleik HM í gærkvöldi.

Króatar komust í 18-9 og unnu 31-28 sigur á Frökkum í undanúrslitaleiknum en leikurinn fór á heimavelli þeirra í Zagreb.

Næst á dagskrá er úrslitaleikur á móti annað hvort Danmörku eða Portúgal en undanúrslitaleikur þeirra fer fram í kvöld.

Úrslitaleikurinn verður fyrsti leikur króatíska landsliðsins sem verður ekki á heimavelli því leikurinn er spilaður í Osló í Noregi. Hver sem mótherjinn verður á sunnudaginn þá á Dagur möguleika á því að gera það sem enginn þjálfari hefur afrekað.

Dagur gæti þá orðið aðeins annar útlenski þjálfarinn í sögunni til að gera landslið að heimsmeisturum. Sá eini sem hefur náð þessu er Króatinn Vlado Stenzel sem gerði Vestur-Þjóðverja að heimsmeisturum á HM í Danmörku árið 1978.

Júgóslavneska landsliðið hafði áður unnið gull á Ólympíuleikunum 1972 og brons á heimsmeistaramótinu 1970 undir stjórn Stenzel. Hann tók við þýska landsliðinu árð 1974 og þjálfaði það í átta ár.

Vinni Dagur þá nær hann aftur á móti einstakri tvennu. Hann gerði nefnilega þýska landsliðið að Evrópumeisturum árið 2016.

Enginn þjálfari hefur unnið bæði HM og EM sem landslið sem útlendingur. Dagur er því einum sigri frá því að stofna nýjan klúbb í þjálfarasögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×