Innlent

Hand­tökur vegna inn­brots og skemmdarverka

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Að minnsta kosti sjö voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt.
Að minnsta kosti sjö voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm

Þrír voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt í tengslum við rannsókn á innbroti og tveir vegna skemmdarverka. Einn handteknu réðist á lögreglumenn og fangavörð með hnefahöggum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar.

Einn til viðbótar var handtekinn grunaður um líkamsárás á skemmtistað og annar grunaður um vörslu fíkniefna. Þá var óvelkomnum vísað úr verslun og afskipti höfð af öðrum vegna þjófnaðar og fjársvika í matvöruverslun.

Ein tilkynning barst um innbrot í skóla og önnur um innbrot í fyrirtæki. 

Lögregla hafði einnig afskipti af nokkrum ökumönnum og nokkur minniháttar umferðaróhöpp áttu sér stað. Í einu tilvikinu stakk ökumaður af eftir að hafa ekið á aðra bifreið en upplýsingar liggja fyrir um bílinn sem var ekið á brott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×