Erlent

Norska stjórnin gæti sprungið í dag

Kjartan Kjartansson skrifar
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra. Dagar ríkisstjórnar hans og Miðflokksins virðast vera taldir.
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra. Dagar ríkisstjórnar hans og Miðflokksins virðast vera taldir. Vísir/EPA

Líklegt er talið að samsteypustjórn Verkamannaflokksins og Miðflokksins í Noregi springi jafnvel strax í dag. Þrátefli er sagt uppi á milli flokkanna um hvort innleiða eigi Evróputilskipanir sem eru hluti af svonefndum fjórða orkupakka Evrópusambandsins.

Heimildir norska ríkisútvarpsins herma að líklegasta niðurstaðan sé að Miðflokkurinn gangi út úr ríkisstjórnarsamstarfinu. Það gæti jafnvel gerst strax eftir fyrirhugaðan fund flokksmanna í dag. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sagður hafa afboðað sig á viðburð í dag vegna neyðarástandsins á stjórnarheimilinu.

Verkamannaflokkurinn telur nauðsynlegt að innleiða strax evrópsku tilskipanirnar en Miðflokkurinn hafnar frekara samstarfi við Evrópusambandið í orkumálum. Deilurnar eiga sér í stað í skugga áhyggna Norðmanna af sögulega háu raforkuverði í vetur.

Þingflokkar stjórnarflokkanna funduðu hvor í sínu horni í gær en það virðist ekki hafa breytt afstöðu þeirra.

Nokkrir flokkar á norska þinginu og hluti verkalýðshreyfingarinnar er sagður vilja að Noregur segi sig alfarið úr samstarfi við ESB í orkumálum. Sérfræðingar sem norska ríkisútvarpið hefur rætt við segja að það gæti stefnt EES-samningum sjálfum í tvísýnu. Ísland á aðild að samningnum auk Noregs og Liechtenstein.

Þingkosningar eiga að fara fram í Noregi í september. Gangi Miðflokkurinn úr ríkisstjórninni þyrfti Verkamannaflokkurinn að reiða sig á stuðning nokkurra flokka til þess að koma málum í gegnum þingið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×