Lærisveinar Alfreðs úr leik eftir framlengdan leik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. janúar 2025 21:39 Alfreð yppir öxlum. EPA-EFE/Stian Lysberg Solum Portúgal lagði Þýskaland – lærisveina Alfreðs Gíslasonar - með eins marks mun eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handbolta, lokatölur 31-30.
Portúgal byrjaði leik kvöldsins mun betur og var 5-1 yfir þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar. Eftir að hafa náð að minnka muninn niður í tvö mörk var hann kominn aftur upp í fjögur þegar fyrri hálfleikur rann sitt skeið, staðan 13-9. Eitthvað hefur Alfreð sagt í hálfleik því Þjóðverjar byrjuðu síðari hálfleik af krafti. Um miðbik hans skoruðu þeir fjögur mörk í röð og fóru þar með úr því að vera tveimur mörkum undir í að vera tveimur mörkum yfir. Leikurinn var í járnum það sem eftir lifði leiks og tókst Portúgal að knýja fram framlengingu með marki Pedro Portela þegar 25 sekúndur voru til leiksloka. Staðan 26-26 og því þurfti að framlengja. Framlengingin var nokkuð sveiflukennd en á endanum var það Martim Costa sem skoraði það sem reyndist sigurmarkið, lokatölur 31-30. Victor Iturriza Alvarez í leik kvöldsins.EPA-EFE/Stian Lysberg Solum Francisco Mota da Costa var markahæstur hjá Portúgal með átta mörk og fjórar stoðsendingar. Þar á eftir kom Victor Iturriza með sjö mörk. Hjá Þýskalandi var Lukas Zerbe markahæstur með níu mörk. Portúgal mætir Danmörku, ríkjandi heimsmeisturum, í undanúrslitum.
Handbolti HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Boltastrákur hjálpaði markverði að verja víti Fótbolti Landsleik Svía og Rúmena hætt eftir svakalegt samstuð leikmanna Handbolti Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 116-79 | Keflvíkingar rassskelltir á Króknum Körfubolti Neuer meiddist við að fagna marki Fótbolti „Ég get alltaf stólað á Collin“ Körfubolti Daníel Ingi í sextánda sæti á EM: „Hefði viljað stökkva lengra“ Sport „Vorum virkilega virkilega þreyttir síðasta hálftímann“ Fótbolti „Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við“ Körfubolti Orri klúðraði dauðafæri og Man United slapp í burtu með jafntefli Fótbolti Uppgjör: Höttur-Þór Þ. 103-95 | Fallnir Hattarmenn unnu Þórsara Körfubolti Fleiri fréttir Landsleik Svía og Rúmena hætt eftir svakalegt samstuð leikmanna Haukur flottur í sigri á liði Gumma Gumm í Meistaradeildinni Elvar bjó til sjö mörk en liðið missti af sigri í lokin Gunnar kveður og Stefán tekur við Elín Rósa fullkomnar íslenska tríóið hjá þýska stórliðinu Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Valsmenn skutu bikarmeistarana aftur niður á jörðina Mosfellingar hristu af sér bikarvonbrigðin með stórsigri Kristjan Örn fagnaði landsliðssæti með frábæran leik Sigvaldi með sex mörk og báðir bræðurnir skoruðu á móti Barcelona Nýjasti landsliðsmaðurinn fagnaði sætinu með hauskúpuleik „Þetta var bara núna eða aldrei“ Fetar í fótspor afa síns sem hann aldrei kynntist með landsliðinu „Ég var heitur og þegar maður er heitur á maður að negla á markið“ Botnliðin unnu bæði og eygja nú meiri von um að bjarga sér Uppgjörið: Haukar - FH 25-28 | FH með montréttinn eftir endurkomu í Hafnarfjarðarslagnum Dagur og félagar áfram á sigurbraut en Gummersbach tapaði Hundrað prósenta Sigvaldi í úrvalsliði Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt „Eins manns dauði er annars brauð“ „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Erlingur tekur aftur við Eyjaliðinu Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Svona var blaðamannafundur Snorra Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Frábær leikur Andra dugði ekki til Myndasyrpa frá fögnuði Fram Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Myndasyrpa frá fögnuðu Hauka „Hvort við segjum núna titilinn eða tittlinginn, ég veit það ekki“ Sjá meira