Innlent

Býst við því að boða til fundar í kjara­deilu kennara

Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari gerir eina lokatilraun til að binda enda á kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga á morgun.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari gerir eina lokatilraun til að binda enda á kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga á morgun. Vísir/Vilhelm

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari býst við því að boða til fundar í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga á morgun. Samningsaðilar hafa verið að störfum og átt samskipti síðustu daga að sögn Ástráðs en enginn formlegur fundur farið fram síðan á miðvikudag í síðustu viku.

Kennaraverkföll hefjast að óbreyttu laugardaginn 1. febrúar í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Á sama tíma hefst undirbúningur að verkfallsaðgerðum í framhaldsskólum.

Alger pattstaða hefur verið í kjaradeilunni. Eftir síðasta formlega fund deiluaðila, á miðvikudag í síðustu viku, sagði Ástráður ekki ástæðu til að boða til nýs fundar og hefur sagt það sama alla daga síðan. Það breyttist svo skyndilega seinni partinn í dag.

Aðalmeðferð í héraðsdómi

Aðalmeðferð í máli foreldra leikskólabarna gegn Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 15 í dag. Um er að ræða foreldra barna á fjórum leikskólum, sem segja börnum hafa verið mismunað með hinum afmörkuðu aðgerðum en verkföll í leikskólunum voru ótímabundin á meðan þau voru tímabundin í grunn- og framhaldsskólum. 


Tengdar fréttir

Aðalmeðferð í máli foreldra gegn KÍ hefst klukkan 15 í dag

Aðalmeðferð í máli foreldra gegn Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 15 í dag. Um er að ræða foreldra barna á fjórum leikskólum, sem segja börnum hafa verið mismunað með hinum afmörkuðu aðgerðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×