Innlent

„Þá gerist það bara mjög skyndi­lega að hundurinn ræðst að mér“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hundurinn sem beit konuna var af Rottweiler-tegund.
Hundurinn sem beit konuna var af Rottweiler-tegund. Vísir/Tryggvi og Getty

Hundurinn sem réðst á konu á Akureyri fyrir tæpri viku síðan var af Rottweiler-tegund. Konan segir þetta eitt það skelfilegasta sem hún hefur lent í í viðtali við Vikublaðið á Akureyri og í viðtali við Akureyri.net.

Í viðtali við Akureyri.net er rætt við bæði konuna og eigimann hennar sem hefur einnig verið frá vinnu vegna áverka konunnar. Þau segjast hafa viljað ræða árásina opinberlega því hún hafi tekið á en líka vegna þess að í hverfinu er skóli og leikskóli. Viðtal Vikublaðsins og viðtal Akureyri.net þar sem má sjá ljósmyndir af áverkum konunnar.

Þar kemur einnig fram að hjónin hafi fengið þær upplýsingar að hundinum yrði lógað en það hafi ekki verið búið að gera það í gærkvöldi.

Í viðtölum við konuna kemur fram að konan hafi verið á gangi eftir Kjarnagötu og beygt niður Wilhelmínugötu þegar hún sá hundinn sem þá var að gera þarfir sínar. Ungur maður hafi verið með hundinum en þau ekki átt í neinum orðaskiptum. 

„Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér, bítur mig í handlegg, um olnboga og hangir þar að mér fannst mjög lengi. Hann er það kraftmikill og sterkur að hann rífur mig niður í götuna og heldur mér alveg fastri þannig að ég gat ekkert gert,” er haft eftir konunni á vef Vikublaðsins en hún þó ekki nafngreind í fréttinni.

Segir að í þessum átökum hafi konan axlarbrotnað og fengið ljóta áverka á handlegg. Haft er eftir konunni að maðurinn hafi ekkert ráðið við hundinn en að hringt hafi verið á sjúkrabíl og hún flutt á spítala þar sem gert var að sárum hennar.

Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar vitna að árásinni. Í tilkynningu lögreglunnar í dag kom fram að málið væri til rannsóknar hjá embættinu og að sveitarfélaginu hefði sömuleiðis verið tilkynnt um málið.

„Upplýsingar eru um að mögulega hafi vitni verið að árásinni. Viðkomandi eru beðin um að gefa sig fram við lögreglu eða hafa samband í síma 444-2800 á opnunartíma,“ segir að lokum í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×