Sport

Gunnar mætir Kevin Holland í búrinu í London

Aron Guðmundsson skrifar
Áhugaverður bardagi í vændum milli Gunnars og Kevin Holland
Áhugaverður bardagi í vændum milli Gunnars og Kevin Holland Vísir/Getty

Gunnar Nel­son mun að öllum líkindum mæta Kevin Holland í bar­daga­búrinu á vegum UFC á O2 leik­vanginum London þann 22.mars næst­komandi.

Þetta hefur Vísir eftir öruggum heimildum en Haraldur Dean Nel­son, faðir og um­boðs­maður Gunnars stað­festir viðræður kappanna á milli í sam­tali við Vísi.

Kapparnir séu búnir að samþykkja að mætast í bar­daga­búrinu og er nú beðið eftir því að bæði Gunnar og Kevin Holland riti undir form­legan samning varðandi bar­dagann.

Um stóran bar­daga verður að ræða fyrir Gunnar á leik­vangi sem er farinn að teljast sem hans heima­völlur í UFC. Á O2 leik­vanginum hefur hann oft barist, þar líður honum vel.

Kevin Holland er vel þekkt stærð í UFC bar­daga­heiminum og hefur barist mjög oft undan­farin ár, nú síðast þann 18.janúar síðastliðinn er hann laut í lægra haldi gegn Reini­er de Ridd­er.

Holland hefur tapað fjórum af síðustu fimm bar­dögum sínum en hann ber þó að varast. Þetta er bar­dagamaður sem hefur unnið 26 bar­daga á sínum bar­daga­ferli, fjórtán þeirra með rot­höggi og átta með upp­gjafar­taki.

Bandaríkjamaðurinn Holland er afar litríkur karakter. Hann fagnaði með Donald Trump, Bandaríkjaforseta, eftir sigur á bardagakvöldi UFC í fyrra. 

Þá sneri hann niður byssumann á veitingastað í Houston hér um árið.

Þegar kemur að bar­daganum við Holland verða liðin tvö ár frá síðasta bar­daga Gunnars, sem átti sér ein­mitt stað á O2 leik­vanginum gegn Bandaríkja­manninum Bry­an Bar­berena. Bar­dagi sem Gunnar kláraði í fyrstu lotu.

Gunnar er á tveggja bar­daga sigur­göngu en langt hefur liðið á milli hans bar­daga fyrir UFC sam­bandið upp á síðkastið. Alls státar Gunnar sig af afar myndar­legri töl­fræði á at­vinnu­manna­ferlinu: 19 sigra og aðeins fimm töp

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×