Enski boltinn

Ó­létta eigin­konan birti viðbjóðs­leg skila­boð

Sindri Sverrisson skrifar
Kai Havertz leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að vítaspyrna hans var varin í gær, í leiknum við Manchester United. Ólétt eiginkona hans, Sophia, fékk viðurstyggileg skilaboð eftir leikinn.
Kai Havertz leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að vítaspyrna hans var varin í gær, í leiknum við Manchester United. Ólétt eiginkona hans, Sophia, fékk viðurstyggileg skilaboð eftir leikinn. Samsett/Getty/Instagram

Eiginkona Kai Havertz, sóknarmanns Arsenal, fékk send viðurstyggileg skilaboð þar sem henni var meðal annars óskað fósturláts, eftir tap Arsenal í enska bikarnum í fótbolta í gær.

Arsenal tapaði gegn Manchester United í vítaspyrnukeppni, eftir að staðan hafði verið 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu.

Havertz fiskaði víti í venjulegum leiktíma en Altay Bayindir varði spyrnu Martins Ödegaard. Bayindir varði svo eina spyrnu í vítaspyrnukeppninni, frá Havertz, á meðan að United nýtti allar fimm spyrnur sínar og tryggði sig áfram í 32-liða úrslit.

Eftir þetta fékk Sophia Havertz send viðbjóðsleg skilaboð frá nettröllum, sem hún birti svo skjáskot af á Instagram, sem meðal annars tengdust ófæddu barni þeirra hjóna.

Skilaboðin sem biðu Sophiu Havertz í innhólfinu á Instagram voru vægast sagt viðbjóðsleg. Hún birti þau sjálf.Instagram@sophiaemelia

„Ég vona að þú lendir í fósturláti,“ stóð í einum skilaboðum. „Ég ætla að koma heim til þín og slátra barninu þínu. Ég er ekki að grínast, bíddu bara,“ stóð í öðrum.

Havertz-hjónin hafa verið saman síðan árið 2018, giftust á síðasta ári og tilkynntu í nóvember að þau ættu von á barni. Havertz hefur áður, þegar hann var leikmaður Chelsea, tjáð sig um áhrif þess á parið að hann sé áberandi fótboltastjarna.

„Fótboltinn er lífið okkar. Ef að maður tapar leik þá er lífið ekkert auðvelt. Ég held að allir heima, sérstaklega kærastan mín, hafi átt erfiðar vikur að undanförnu,“ sagði Havertz á sínum tíma.

Sophia biðlar til fólks að gæta betur að því hvernig það hegðar sér, og skrifaði með skilaboðunum sem hún birti á Instagram:

„Mér finnst það algjörlega með ólíkindum að einhver geti skrifað svona lagað. Vonandi skammast þú þín innilega.“

„Ég veit ekki einu sinni hvað ég get sagt en vinsamlegat sýnið meiri nærgætni. Við erum betri en þetta…“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×