Innlent

Húsköttur á Sel­tjarnar­nesi með fugla­flensu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Einar

Heimilisköttur á Seltjarnarnesi greindist í dag með fuglaflensu. Skæð fuglaflensa H5N5 greindist í fyrsta skipti í ketti sem drapst fyrir jól.

Kötturinn sem greindist á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum var af heimili á Seltjarnarnesi. Hann hafði, samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun, verið veikur með svipuð einkenni og fyrri kötturinn, hita, slappleika og taugaeinkenni, áður en hann var aflífaður.

Talið er að hann hafi smitast af fuglshræi en aðrir kettir á heimilinu eru frískir. Engin tenging er á milli kattanna sem hafa greinst með fuglaflensu og ekkert bendir til að hún smitist katta á milli.

Í tilkynningunni kemur frma að töluvert margar tilkynningar hafi borist Matvælastofnun um dauða villtra fugla að undanförnu, sérstaklega grágæsa á höfuðborgarsvæðinu. Fuglaflensa hafi einnig greinst í þessari viku í fyrrnefndum grágæsum sem og álftum.

Matvælastofnun mælir með að fólk reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að kettir þeirra komist í snertingu við fugla. Tekið er fram að smithætta fyrir fólk af völdum fuglainflúensu H5N5 sé mjög lítil en þó er fólk minnt á að gæta hreinlætis í umgengni við dýr og umhirðu þeirra.

„Matvælastofnun ítrekar tilmæli til almennings um að tilkynna stofnuninni um villta fugla og villt spendýr sem finnast dauð, þegar ástæða dauða er ekki augljós,“ segir á vef MAST en hægt er að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar með því að smella hér.

Nánari upplýsingar er líka að finna á síðu Matvælastofnunar um hvað fólk skuli gera ef það finnur veika eða dauða villta fugla eða villt spendýr. Þar er meðal annars tekið fram að hræ skuli látin liggja nema ef þau eru þannig staðsett að nauðsynlegt sé að fjarlægja þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×