Innlent

Hyggst leggja til ramma­á­ætlun á vorþinginu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverifs-, orku- og loftslagsráðherra.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverifs-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lagði línurnar fyrir fyrstu mánuðum þessa kjörtímabils á ríkisstjórnarfundi í morgun. Orkumál eru þar ofarlega á lista og hyggst orkumálaráðherra leggja fram tillögu að rammaáætlun. 

Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar, sem tók við keflinu í lok síðasta mánaðar voru skýrir um það að verkin verði látin tala á næstu misserum, þegar þeir gengu út af ríkisstjórnarfundi í morgun.

Almenningur í forgangi

Orkumál verða mikið áhersluatriði og segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að hann muni leggja áherslu á þrjú mál sem stefnt verði á að afgreiða á vorþinginu. Fyrst verði að liðka fyrir aukinni orkuöflun með einföldun á leyfisveitingaferlinu og þá þurfi að tryggja forgang almennings að afhendingu raforku.

„Þannig að það sé algjörlega ljóst þegar er umframeftirspurn í kerfinu að almenningur, heimili og smærri fyrirtæki njóti forgangs. Þetta á í mínum huga að vera hluti af okkar samfélagssáttmála að allir hafi aðgang að öruggri orku og ódýrri orku og lögin í landinu verða að endurspegla þetta, sem þau gera ekki í dag.“

Eins ætlar hann að leggja fram þingsályktunartillögu um rammaáætlun.

„Ég mun leggja til að ákveðnir kostir fari þar í nýtingarflokk og verndarflokk,“ segir Jóhann Páll.

Ýmsar hugmyndir um hagræðingarmöguleika

Þessi þrjú mál séu þess eðlis að mikilvægt sé að afgreiða þau sem allra fyrst.

„Það er búið að skipa ofboðslega marga starfshópa og láta alls konar vinnu malla, búið að setja heilmikla fjármuni í það og skrifa ágætar skýrslur þar sem er margt sem er hægt að nýta og horfa til. Nú þarf bara að hefjast handa.“

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ýmsar aðgerðir til skoðunar til að hagræða í ríkisrekstri.

„Það hafa til dæmis verið nefnd innkaup ríkisins, fjárstýring ríkisins, fjármögnun þess. Síðan eru þessar hugmyndir um hagræðingu einstakra verkefna og forgansröðun, sem ég er sannfærður um að við munum líka finna í þessum tillögum sem almenningur er að skila til okkar núna. Góðir punktar sem munu nýtast okkur í þeirri vinnu.“


Tengdar fréttir

Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar var kynnt á blaðamannafundi í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði í dag. Hún inniheldur helstu áhersluatriði ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, sem talin eru fram í 23 punktum.

Leggja til styttri tímafresti og minni flækjur í orkumálum

Starfshópur um endurskoðun á rammaáætlun um orkumál leggur til að tímafestir verði innleiddir til þess að ekki þurfi að líða meira en 24 mánuðir frá því virkjunarhugmynd er send Orkustofnun og þar til ráðherra leggur þingsályktunartillögu fyrir þingið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×