Enski boltinn

Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pep í leik dagsins.
Pep í leik dagsins. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

„Nei,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, einfaldlega aðspurður hvort hans liðið væri komið aftur í gírinn eftir 4-1 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir skelfilegt gengi að undanförnu hefur Man City nú unnið tvo leiki í röð og hefði að því virtist getað skorað töluvert fleiri mörk gegn Hömrunum ef vilji hefði verið fyrir hendi.

„Það er jákvætt að vinna en við erum enn ekki á sama stað og við vorum, sama hver ástæðan er. Úrslit dagsins hjálpa til en við höfum átt erfitt.“

Brasilíumaðurinn Savinho átti frábæran leik í dag og fór illa með varnarmenn gestanna. Lagði hann upp þrjú af fjórum mörkum leiksins.

„Hann var frábær. Hann er einn af fáum ferskum leikmönnum í hópnum. Hann sýndi brot af snilligáfu. Vinnuþrek hans var ótrúlegt en það vantar oft á tíðum ró í leik hans. Við vorum alltaf að flýta okkur,“ sagði Pep um vængmann sinn.

„Við höfum átt erfitt uppdráttar undanfarið en það er jákvætt að vinna tvo leiki í röð. Nú eru líka þrír leikir síðan við töpuðum síðast leik. Að eiga erfitt uppdráttar í mánuð eða einn og hálfan á móti átta árum af velgengni er ekki slæmt að mínu mati.“

„Við vorum heppnir með fyrsta markið, þeir voru betri í upphafi leiks og hefðu getað skorað eitt eða tvö mörk. Seinna markið hjálpaði okkur mikið. Það var magnað mark en við vorum samt ekki eins og við eigum að vera,“ sagði Pep að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×