Innlent

Þrír menn leiddir frá borði Play-flugvélar

Jakob Bjarnar skrifar
Flugvél Play er nú á leið til Tenerife en án mannanna þriggja, sem verða að þola íslenskan vetur lengur en til stóð.
Flugvél Play er nú á leið til Tenerife en án mannanna þriggja, sem verða að þola íslenskan vetur lengur en til stóð. vísir/vilhelm

Nokkur rekistefna varð í flugvél Play sem var á leið til Tenerife í dag en vísa varð þremur ungum mönnum frá borði. Flugstjóri mat ástand mannanna þannig að þeir væru ógn við öryggi vélarinnar.

Til stóð að flugvélin héldi af stað til Tenerife frá Keflavík í morgun klukkan níu. Nokkur töf varð á áætluðu flugi en að sögn Birgis Olgeirssonar upplýsingafulltrúa Play er flugfélagið að vinna upp tapaðan tíma vegna bilun einnar véla sinna.

Þegar loks stóð til að taka á loft, um klukkan 13, var ástand þriggja ungra manna metið þannig að ekki væri óhætt að hefja flugtak. Var þeim fylgt út í fylgd lögreglu.

„Það var búið að tilkynna farþegum að það yrði frestun,“ segir Birgir í samtali við fréttastofu. Hann segir það svo að þegar ástæða fyrir brottvísun er þessa eðlis, að það varði öryggi flugs, sé ekki um það að ræða að flugmiðarnir fáist endurgreiddir. „Ef flugstjóri telur að ástand manna með þeim hætti að það geti ógnað öryggi þá verður að taka ákvarðanir af eða á.“

Samkvæmt heimildum Vísis höfðu öryggisfulltrúar á Leifsstöð veitt mönnunum þremur athygli áður um morguninn, þá vegna ölvunar og haft af þeim afskipti. Það vakti hins vegar athygli farþega að ekki voru nein læti í mönnunum þegar þeir voru leiddir frá borði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×