Viðskipti innlent

Gjafa­bréf og alls konar flatbökudótarí vin­sælar jóla­gjafir í ár

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að í dag séu janúarútsölurnar formlega byrjaðar.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að í dag séu janúarútsölurnar formlega byrjaðar. Stöð 2

Hinar árlegu janúarútsölur hefjast formlega í dag, en nokkrar verslanir tóku þó forskot á sæluna milli jóla og nýárs. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að neytendur ættu að geta gert góð kaup, sérstaklega með kaupum á árstíðabundnum vörum.

Stóru janúarútsölurnar hófust formlega í dag, í það minnsta í verslunarmiðstöðvunum.

„Í heildina litið þá má nú segja að þetta byrji í dag og á næstu dögum í flestum tilvikum,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdarstjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

Hann var spurður hvort stóru afsláttardagarnir í nóvember, sem hafa fest sig í sessi á síðustu árum, hafi áhrif á hina árlegu janúarútsölu.

„Það er kannski erfitt að segja nákvæmlega á þessum tímapunkti en þeir sem ég hef heyrt í, þeir nefna það nú að það megi gera ráð fyrir því að janúarútsölurnar verði alveg nokkuð góðar þó að verslun hafi í ýmsu tilliti gengið umfram væntingar og í einhverjum tilvikum kann lagerstaðan að vera þannig að hún bjóði nú kannski ekki upp á umfangsmiklar útsölur en mér heyrist heilt yfir að þá sé nú staðan sú að menn geri ráð fyrir að það verði góð útsala og nóg í boði.“

Hægt sé að gera góð kaup, sérstaklega varðandi árstíðabundnar vörur.

„Svo er það nú þannig að í ýmsum verslunarrekstri eru vörur að einhverju leyti tengdar árstíðum og þannig hefur verið nefnt við mig að til dæmis í fataversluninni sé hefðbundið - og það verði ekki á neinn annan veg núna - að það sé hægt að gera mjög góð kaup á vönduðum vetrarfatnaði núna á vetrarútsölunni. Mér heyrist bara heilt yfir að þá líti þetta bara vel út og að útsölurnar verði þannig að neytendur hafi töluverð tækifæri til að gera góð kaup.“

En hvaða jólagjöf var vinsælust í ár?

„Það kemur nú kannski seinna svona heildarmyndin af því hver vinsælasta jólagjöfin var, það liggur ekki enn fyrir en ég hef heyrt að það hafi verið selt töluvert af gjafakortum, til dæmis í verslunarmiðstöðvunum, það hafi verið vinsæl gjöf og svo hafi líka spár Rannsóknarseturs verslunarinnar raungerst í ýmsu tilliti því búsáhaldaverslanirnar seldu mikið af þessum vörum tengdum pizzubakstri.“


Tengdar fréttir

Gjafakort virki svo sannarlega á útsölum

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir gjafakort svo sannarlega virka á útsölum. Hann hafi farið með rangt mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun þegar hann fullyrti hið gagnstæða. Rætt var um jólaverslunina í ár í þættinum í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×