Erlent

Far­þegar heyrðu mikinn hvell við flug­tak og vélinni nauð­lent

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Boeing 737-800 vél hollenska flugfélagsins KML var á leið frá Osló til Amsterdam áður en gripið var til nauðlendingar. Myndin er úr safni.
Boeing 737-800 vél hollenska flugfélagsins KML var á leið frá Osló til Amsterdam áður en gripið var til nauðlendingar. Myndin er úr safni. Getty/Nicolas Economou

Farþegar með flugi KLM frá Osló til Amsterdam heyrðu mikinn hvell við flugtak frá Gardemoen-flugvelli í fyrradag en vélin nauðlenti skömmu síðar á flugvellinum í Sandefjord. Hluti úr vélinni fannst á flugbrautinni á Gardemoen eftir atvikið sem nú er til rannsóknar. Vélin er sömu gerðar og sú sem fórst í Suður-Kóreu um helgina.

Bilun í vökvabúnaði vélarinnar leiddi til þess að henni var nauðlent á laugardagskvöldið að því er norski miðillin VG greinir frá. 182 voru um borð í vélinni en engann sakaði en flugmenn höfðu tilkynnt um reyk frá vinstri hreyfli og misstu stjórn á vélinni eftir nauðlendingu með þeim afleiðingum að vélin hafnaði á grasi utan flugbrautarinnar. Viðbragðsaðilar mættu fljótt á vettvang en betur fór en á horfðist að því er fram kemur í umfjöllun blaðsins en um klukkan tíu í gærkvöldi höfðu allir farþegar verið ferjaðir úr vélinni, heilir á húfi, aftur í flugstöðina.

„Eftir lendingu náðum við ekki að stjórna vélinni, hún sveigði til hægri og við gátum ekki stöðvað hana,“ má heyra annan flugstjóra vélarinnar segja á upptöku úr samskiptakerfi.

Segir of snemmt að draga ályktanir um tengsl við önnur slys

Í dag greinir VG frá því að Avinor, ríkisfyrirtækið sem annast rekstur flugvalla í Noregi, hafi staðfest að partur úr vélinni hafi fundist á flugbrautinni í Osló. Ekki hefur komið fram að svo stöddu um hvers konar hlut úr vélinni er að ræða, KLM hefur málið til rannsóknar en talsmaður fyrirtækisins vildi ekki tjá sig um það í samtali við VG.

Þá segir fyrtækið að að svo stöddu sé ekki tímabært að setja atvikið í samhengi við önnur nýleg flugatvik sem varða vélar af sömu gerð, Boeing 737-800. Rannsóknarvinna sé enn í fullum gangi og því ótímabært að draga nokkrar ályktanir um slíkt.

Vélin sem um ræðir er sömu gerðar og sú sem fórst í Suður-Kóreu um helgina þar sem 179 létust. Þarlend stjórnvöld hafa fyrirskipað að allur flugfloti landsins verði skoðaður með tilliti til öryggis, allar Boeing 737-800s vélar verði skoðaðar sértaklega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×