Sport

Snýr aftur til leiks og tekur galla­buxurnar með

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Magnus Carlsen er af mörgum talinn sterkasti skákmaður allra tíma.
Magnus Carlsen er af mörgum talinn sterkasti skákmaður allra tíma. EPA

Norski skákmeistarinn Magnus Carlsen hefur snúið aftur til leiks á heimsmeistaramótið í at- og hraðskák í New York. Hann dró sig úr keppni á föstudag eftir að hafa fengið sekt fyrir að tefla í gallabuxum. 

Frá þessu greindi Carlsen sjálfur í viðtali á YouTube rásinni Take Take Take í dag. Heimsmeistaramótið í at- og hraðskák stendur nú yfir í New York, en mótið hófst 26. desember og lýkur á þriðjudag. 

Carlsen tefldi fyrstu tvær skákir mótsins í gallabuxum, en skömmu eftir seinni leikinn fékk hann sekt upp á 200 Bandaríkjadali frá dómara fyrir að brjóta reglur mótsins um klæðaburð. Þá tilkynnti hann að hann ætlaði að hætta keppni. 

„Til að gera langa sögu stutta mun ég spila að minnsta kosti einn dag til viðbótar hér í New York. Ef vel gengur mun ég líka taka annan dag,“ sagði Carlsen í viðtalinu fyrr í dag. Hann hyggst keppa í atskák en hann er ríkjandi heimsmeistari í greininni. 

Hann sagðist hafa átt samtal við Arkady Dvorkovich forseta Alþjóðlega skáksambandsins, Fide, og í kjölfarið ákveðið að skrá sig í keppnina á ný. 

Í viðtalinu sagðist hann tvímælalaust ætla að klæðast gallabuxum í næstu viðureignum. 

„Auk þess þá dýrka ég að spila atskák. Mig langar til að gefa aðdáendum mínum tækifæri til að sjá mig spila. Þetta gæti orðið mitt síðasta skipti, hver veit,“ sagði Carlsen. 

Í færslu á X reikningi Fide sagðist Dvorkovich harma það fjaðrafok sem atburðarás síðustu daga skapaði. Í framhaldinu hygðust samtökin vera sveigjanlegri í tengslum við klæðaburðarreglur og leyfa smávægileg frávik frá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×