Kærkominn sigur City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2024 16:20 Savinho skoraði fyrra mark Manchester City gegn Leicester City og lagði það seinna upp fyrir Erling Haaland. getty/Catherine Ivill Eftir hörmulegt gengi undanfarnar vikur vann Manchester City kærkominn sigur á Leicester City, 0-2, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst City upp í 5. sæti deildarinnar. Leicester er aftur á móti í átjánda og þriðja neðsta sætinu með fjórtán stig, einu stigi frá öruggu sæti. Refirnir hafa tapað fjórum leikjum í röð. Brasilíumaðurinn Savinho hafði ekki skorað mark í ensku úrvalsdeildinni í vetur en það breyttist í dag. Á 21. mínútu kom hann City yfir þegar hann fylgdi eftir skoti Phils Foden sem Jakub Stolarczyk, markvörður Leicester, varði. Leicester fékk sín tækifæri í leiknum. Facundo Buonanotte skallaði meðal annars í stöng og Manuel Akanji bjargaði á línu. Heimamönnum hefndist hins vegar fyrir að nýta ekki færin sín því á 72. mínútu sendi Savinho boltann fyrir á Erling Haaland sem skallaði boltann í netið og kom City í 0-2. Jamie Vardy skallaði í slá skömmu fyrir leikslok en fleiri urðu mörkin ekki og meistararnir fögnuðu langþráðum sigri. Enski boltinn