Innlent

Gott að geta sagt „þú ert hjartan­lega vel­kominn“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Lárus Óskar er svæðisstjóri hjá Hjálpræðishernum.
Lárus Óskar er svæðisstjóri hjá Hjálpræðishernum.

Um sextíu manns komu í jólamat Hjálpræðishersins í gærkvöldi, og voru allir gestir leystir út með gjöfum. Svæðisforingi hersins segir gleðilegt að geta endurvakið hefðina, eftir nokkurra ára hlé. 

Hjálpræðisherinn hefur um árabil haft þann sið að bjóða fólki sem er eitt um jólin í mat klukkan sex á aðfangadagskvöld, þar sem það getur átt notalega og fallega stund saman. Svæðisforingi segir allt hafa gengið vel.

„Þetta voru milli 50 og 60 manns sem komu og borðuðu hjá okkur lambalæri og hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Svo er alltaf hefð hjá okkur lesa jólasögu, vera með jólahugvekju, syngja jólalög og dansa í kringum jólatréð,“ segir Lárus Óskar Sigmundsson, svæðisforingi hjá Hjálpræðishernum. Að kvöldi loknu hafi allir verið leystir út með gjöfum.

Mikil þörf á síðasta ári

Þrátt fyrir að um áralanga hefð sé að ræða lagðist hún niður á tímum Covid, en var endurvakin nú í ár.

„Það var gott að koma aftur, geta gert þetta og hjálpað fólki sem er eitt um jólin.“

Gert hafði verið ráð fyrir um 90 til 100 manns, en Lárus segir alltaf einhver afföll verða, sér í lagi þegar færðin er jafn slæm og í gær.

„Maður sá að þörfin var mikil, sérstaklega í fyrra. Það var mikið af fólki sem hringdi í fyrra og spurði hvort við værum með jólamat. Þá sögðum við 'Nei, því miður'. Það var gott að geta sagt í ár 'Jú, við erum með það og þú ert hjartanlega velkominn'.“

Lárus segist finna fyrir miklum stuðningi við hreyfinguna, sem treysti á frjáls framlög.

„Það er rosa góður og mikill stuðningur, hvert einasta ár.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×