Innlent

Vaktin: Ný ríkis­stjórn kynnt fyrir landanum

Samúel Karl Ólason og Jón Ísak Ragnarsson skrifa
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín.
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín. Vísir/Vilhelm

Ný ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar verður kynnt Íslendingum klukkan eitt í dag. Þá munu valkyrjurnar svokölluðu; Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín kynna stjórnarsáttmála þeirra og ráðherra.

Þorgerður Katrín hefur opinberað fjóra ráðherra Viðreisnar. Sjálf fer hún í utanríkisráðuneytið. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir verður dómsmálaráðherra. Hanna Katrín Friðriksson verður atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson verður fjármála- og efnahagsráðherra, utan þings.

Þá verði Sigmar Guðlaugsson þingflokksformaður flokksins á kjörtímabilinu.

Dagskráin í dag

Dagskrá dagsins er í grófum dráttum á þann veg að dagurinn hefst klukkan níu þegar nýir þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna verðandi funda og munu formennirnir þar leggja fram tillögu að ráðherraskipan. Í kjölfar samþykktar þeirra tillagna munu flokksráð flokkanna koma saman til að fara yfir stjórnarsáttmálann.

Þar á eftir, eða klukkan eitt, verður svo blaðamannafundur í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði þar sem ríkisstjórnin og ráðherraskipan verður kynnt.

Um klukkan þrjú fer fráfarandi ríkisstjórn svo á ríkisráðsfund með Höllu Tómasdóttur, forseta. Klukkan hálf fimm hefst svo ríkisráðsfundur nýrrar ríkisstjórnar, þar sem forsetinn mun skipa nýtt ráðuneyti.

Fylgst verður með vendingum dagsins í Vaktinni á Vísi hér að neðan. Ef hún birtist ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×