Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Samúel Karl Ólason, Jón Ísak Ragnarsson og Heimir Már Pétursson skrifa 21. desember 2024 08:29 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland. Vísir/Vilhelm Ný ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar var kynnt Íslendingum í dag. Þá kynntu valkyrjurnar svokölluðu; Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stjórnarsáttmála þeirra og ráðherra. Ráðuneyti Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, verður lagt niður og verkefni færð á þrjú önnur ráðuneyti. Kristrún Frostadóttir verður forsætisráðherra. Alma Möller verður heilbrigðisráðherra. Logi Már Einarsson verður menningar- og nýsköpunarráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson verður umhverfisráðherra. Þorgerður Katrín fer í utanríkisráðuneytið. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir verður dómsmálaráðherra. Hanna Katrín Friðriksson verður atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson verður fjármála- og efnahagsráðherra, utan þings. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, verður félagsmálaráðherra. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson verður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Útsendingu frá blaðamannafundinum má sjá hér að neðan. Þar voru einnig kynntar helstu áherslur flokkanna fyrir ríkisstjórnarsamtarfið, sem komu fram í 23. punkta stefnuyfirlýsingu. Dagskráin í dag Dagskrá dagsins er í grófum dráttum á þann veg að dagurinn hófst klukkan níu þegar nýir þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna funduðu og lögðu formennirnir þar fram tillögu að ráðherraskipan. Í kjölfarið fóru flokksráð flokkanna yfir stjórnarsáttmálann. Klukkan eitt var svo blaðamannafundur í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði þar sem ríkisstjórnin og ráðherraskipan var kynnt. Um klukkan þrjú fer fráfarandi ríkisstjórn svo á ríkisráðsfund með Höllu Tómasdóttur, forseta. Klukkan hálf fimm hefst svo ríkisráðsfundur nýrrar ríkisstjórnar, þar sem forsetinn mun skipa nýtt ráðuneyti. Fylgst verður með vendingum dagsins í Vaktinni á Vísi hér að neðan. Ef hún birtist ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.
Ráðuneyti Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, verður lagt niður og verkefni færð á þrjú önnur ráðuneyti. Kristrún Frostadóttir verður forsætisráðherra. Alma Möller verður heilbrigðisráðherra. Logi Már Einarsson verður menningar- og nýsköpunarráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson verður umhverfisráðherra. Þorgerður Katrín fer í utanríkisráðuneytið. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir verður dómsmálaráðherra. Hanna Katrín Friðriksson verður atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson verður fjármála- og efnahagsráðherra, utan þings. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, verður félagsmálaráðherra. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson verður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Útsendingu frá blaðamannafundinum má sjá hér að neðan. Þar voru einnig kynntar helstu áherslur flokkanna fyrir ríkisstjórnarsamtarfið, sem komu fram í 23. punkta stefnuyfirlýsingu. Dagskráin í dag Dagskrá dagsins er í grófum dráttum á þann veg að dagurinn hófst klukkan níu þegar nýir þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna funduðu og lögðu formennirnir þar fram tillögu að ráðherraskipan. Í kjölfarið fóru flokksráð flokkanna yfir stjórnarsáttmálann. Klukkan eitt var svo blaðamannafundur í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði þar sem ríkisstjórnin og ráðherraskipan var kynnt. Um klukkan þrjú fer fráfarandi ríkisstjórn svo á ríkisráðsfund með Höllu Tómasdóttur, forseta. Klukkan hálf fimm hefst svo ríkisráðsfundur nýrrar ríkisstjórnar, þar sem forsetinn mun skipa nýtt ráðuneyti. Fylgst verður með vendingum dagsins í Vaktinni á Vísi hér að neðan. Ef hún birtist ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.
Alþingi Alþingiskosningar 2024 Flokkur fólksins Samfylkingin Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Innlent Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Erlent Áslaug Arna bjargaði kafnandi konu á veitingastað Innlent Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Erlent Einar baðst fyrirgefningar Innlent „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Erlent Fimm látnir og tvö hundruð særðir Erlent Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“ Innlent Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Erlent Í eðli Sólveigar að vera með hnefann á lofti Innlent Fleiri fréttir Vilja ekki plast eða vír á leiðisskreytingar í kirkjugörðum Þetta eru ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“ Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti „Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“ Ný ríkisstjórn og áfall í Magdeburg „Ég held að þetta sé góður dagur fyrir þjóðina“ Áslaug Arna bjargaði kafnandi konu á veitingastað Tveir ungir á 140 kílómetra hraða Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Í eðli Sólveigar að vera með hnefann á lofti Hvetja Íslendinga á svæðinu til að láta vita af sér „Maður mun sakna þess mjög“ Engin breyting á hvalveiðileyfi því það sé glænýtt Ríkisstjórn sem þarfnist mikillar samhæfingar milli formannanna Einar baðst fyrirgefningar Áherslur nýrrar ríkisstjórnar, fordæmalausar aðgerðir og minningarathöfn Fönguðu augnablikin þegar tunglið skyggði á Mars Hafi litað bæjarpólitík í Hafnarfirði í áratugi Settur ráðherra skipar skrifstofustjóra Börnin búin að velja ný nöfn á skólana á Kársnesi „Nokkuð þægilegt samtal um hver fái hvað“ Skorað á Sjálfstæðiskonur í formannsframboð Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda Kynna ráðherraskipan í Hafnarborg Síðasti fundur starfsstjórnar og rýnt í ráðherrakapalinn Fólk fari varlega í kringum nýfædd börn í jólaboðunum Viðreisn fær utanríkis- og fjármálaráðuneytið Borgin fær 150 milljónir frá ESB til að hreinsa Tjörnina og Vatnsmýri Sjá meira