Sport

Heims­meistarinn frá 2023 úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Michael Smith tapaði óvænt í gær.
Michael Smith tapaði óvænt í gær. getty/James Fearn

Michael Smith, sem varð heimsmeistari 2023 og er í 2. sæti á heimslistanum í pílukasti, er úr leik á HM eftir að hafa tapað fyrir Kevin Doets, 3-2, í gær.

„Ég hef aldrei verið svona stressaður í leik en ég vanm. Ég fann að ef ég héldi einbeitingunni myndi ég ekki tapa. Þetta var mjög jafnt og það var frábært að klára þetta,“ sagði Doets sem er í 51. sæti heimslistans.

Doets vann oddasettið, 6-4, þrátt fyrir stór útskot hjá Smith. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2020 sem Smith tapar í 2. umferð heimsmeistaramótsins. Hann mun væntanlega detta út af topp tíu á heimslistanum eftir HM.

Mörg óvænt úrslit hafa litið dagsins ljós á HM en auk Smiths eru pílukastarar á borð við James Wade, Mike De Decker og Gabriel Clemens úr leik.

Í gærkvöldi vann Nick Kenny Stowe Buntz, 3-0, Matt Campbell sigraði Mensur Suljovic, 2-3, og Scott Williams, sem komst í undanúrslit á síðasta HM, hafði betur gegn Niko Sprenger, 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×