Innlent

Ein af hverjum fimm í­búðum tóm í nokkrum sveitar­fé­lögum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá HMS
Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá HMS Vísir

Alls eru yfir tíu þúsund íbúðir á landinu án fastrar búsetu sem jafngildir 6,5 prósent allra fullbúinna íbúða samkvæmt varfærnu mati HMS. Hagfræðingur stofnunarinnar segir flestar leigðar út til ferðamanna en það kunni að breytast með hertum reglum. Allt að tuttugu prósent íbúða eru tómar í nokkrum sveitarfélögum á landinu.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun ákvað í fyrsta skipti að taka saman fjölda allra tómra íbúða á landinu. Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá HMS segir þær yfir tíu þúsund. Stofnunin hafi kannað lögheimilisskráningar og leigusamninga.

Varfærið mat

„Þetta er varfærið mat þannig að þær gætu verið fleiri,“ segir hann.

Flestar íbúðir án fastrar búsetu eru í Reykjavík eða 2500. Í Múlaþingi, Skagafirði, Ísafirði og Borgarbyggð eru 15-20% íbúða taldar vera tómar.  Áætlað hlutfall slíkra íbúða á Akureyri nálægt 10%.

„Við teljum að þetta séu mestu leyti  íbúðir sem eru notaðar í skammtímaútleigu til ferðamanna eða nýttar sem orlofsíbúðir. Það er eitthvað er um nýbyggingar. Þetta kemur ekki á óvart þar sem við erum búin að kanna umfang Airbnb hér á landi,“ segir Jónas, 

Hann telur að þetta kunni að breytast. 

„Það er stóra spurningin hvort íbúðirnar fari inn á langtímamarkað eða verða seldar. Rökin fyrir því er að það er búið að herða skilyrði til útleigu til ferðamanna,“ segir Jónas.

Vantar fleiri nýbyggingar

Alls komu 3400 nýbyggðar íbúðir á markaðinn á árinu af þeim voru tvö þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er meira en stofnunin hafði áætlað. Jónas segir að það þurfi hins vegar að byggja 4000 íbúðir á ári til að uppfylla langtímaþörf.

„Við tökum fagnandi að  fleiri íbúðir komi inn á markaðinn en við áætluðum. Við teljum það vera af því byggingaraðilar leggja meiri áherslu á að klára verkefni en hefja ný. Það er þó æskilegt er að það sé stöðugur taktur. Við teljum að það sé ekki verið að byggja nóg til að bregðast við langtímaþörf. Nú erum sjö þúsund íbúðir í byggingu á landinu og það tekur um tvö ár að byggja hverja og eina. Útlitið er ekki gott fyrir árið 2026 en  þá spáum við að íbúðir sem komi inn á markaðinn verði undir þrjú þúsund,“ segir  Jónas Atli Gunnarsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×