Innlent

Stakk mann þrisvar og reyndi svo að stela hjólinu hans

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árásin var framin á gangstétt meðfram Reykjanesbraut, norðan við Bústaðaveg. Myndin er úr safni.
Árásin var framin á gangstétt meðfram Reykjanesbraut, norðan við Bústaðaveg. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Ívar Aron Hill Ævarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stunguárás og önnur brot. Það er niðurstaða Landsréttar, en áður hafði Ívar Aron hlotið tveggja ára dóm í Héraðsdómi Reykjaness í málinu.

Á meðal þess sem hann var ákærður fyrir var sérstaklega hættuleg líkamsárás og tilraun til ráns á gangstétt meðfram Reykjanesbraut, norðan við Bústaðaveg þann 14. september 2022.

Honum var gefið að sök að veitast að hjólreiðamanni með því að stinga hann þrisvar með hnífi, einu sinni í mjöðm og tvisvar í læri. Síðan hafi Ívar Aron reynt að taka reiðhól mannsins.

Fyrir vikið hlaut hjólreiðamaðurinn þrjú stungusár og ýmsar útvortis- og innvortisblæðingar, þar á meðal slagæðablæðingu. Jafnramt fór hluti lærvöðva hans í sundur.

Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti.Vísir/Vilhelm

Hann var líka ákærður fyrir ýmis önnur brot: þjófnað, nytjastuld, akstur án ökuréttinda og undir áhrifum fíkniefna, vörslur fíkniefna og fjársvik.

Ívar játaði skýlaust sök í héraðsdómi, en líkt og áður segir hlaut hann 2 ára dóm þar. Þar var honum jafnframt gert að greiða hjólreiðamanninum tæplega 1,4 milljónir króna.

Árás á tónleikum Guns N' Roses

Ívar Aron á langan brotaferil að baki. Árið 2019 var hann dæmdur í 22 mánaða fangelsi fyrir brot í 24 ákæruliðum. Þar með talið var ofbeldisbrot þar sem honum var gefið að sök að slá einstakling í andlit og höfuð. Fyrir vikið féll sá sem varð fyrir árásinni til jarðar. Þá mun Ívar hafa sparkað í líkama og höfuð einstaklingsins sem hlaut heilarhristing og aðra áverka á líkama.

Þetta brot var framið undir stúkunni á Laugardalsvelli þann 24. júlí 2018, sama dag og tónleikar hljómsveitarinnar Guns N' Roses fóru fram á Laugardalsvelli.

Í dómi Landsréttar frá því í dag var vísað í þetta ofbeldisbrot Ívars frá árinu 2018.

„Hvorki sakaferill ákærða né annað, sem komið hefur fram í málinu, ber vitni um að ákærði hafi reynt að bæta ráð sitt,“ segir í dómnum. Þá er bent á að árásin hafi verið framin með hníf og því verið sérstaklega hættuleg.

Líkt og áður segir dæmdi Landsréttur hann í þriggja ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×