Lífið

Stjörnulífið: IceGuys tryllingur og 26 ára amma

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur liður á Vísi.

Stjörnur landsins nutu lífsins í vikunni sem er að líða. Jólin nálgast og hitastigið er á leiðinni niður sem ýtti undir hátíðarstemninguna.Það var líka nóg um að vera. Aðventan í algleymingi og einir stærstu tónleikar landsins með strákunum í Iceguys. Þá naut fólk lífsins á ýmsa vegu í faðmi fjölskyldunnar og sumir klæddu sig í rautt.

IceGuys hringdu inn jólin 

Strákabandið IceGuys komu fram á fimm tónleikum í Laugardalshöll um helgina. 

Jón Jónsson þakkar tónleikagestum fyrir sturlaða helgi. „Nákvæmlega ekkert sjálfsagt við þetta allt saman. Þetta er og verður einn af hápunktum lífs míns.“ 

Herra Hnetusmjör þakkar sömuleiðis fyrir sig.

Þriðji í aðventu

Tískudrottningin Elísabet Gunnars naut helgarinnar í faðmi fjölskyldunnar.

Kolbrún Pálína Helgadóttir fegurðardrottning nýtur aðventunnar með góðu fólki.

Ástrós Traustadóttir áhrifavaldur og raunveruleikastjarna var jólaleg í rauðu dressi frá Yeoman.

Tvö ár frá fyrsta stefnumóti

Hlaupadrottningin Mari Jaersk fagnaði tveimur árum með Nirði sínum.

Amman 26 ára

Garðar Gunnlaugsson fyrrverandi knattspyrnumaður birti fallega mynd af sér og konunni sinni, Fanneyju Söndru Albertsdóttur, förðunarfræðings og einkaþjálfara með fyrsta afabarnið í fanginu. Fanney er fædd árið 1998 og er líklega ein yngsta amma landsins.

Óvænt gleði

Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona tilkynnti að hún ætti von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum og leikaranum Hilmi Snæ.

Jólaeftirréttir

Eva Laufey Kjaran matgæðingur veitir fylgjendum sínum innblástur fyrir jólin og deilir ljúffengum eftirréttauppskriftum.

Rauð jól

Sunneva Einars áhrifavaldur og raunveruleikastjarna var glæsileg í rauðum pallíettukjól í anda hátíðarinnar.

Brynja Bjarna var einnig glæsileg í rauðum síðkjól.

Birta Líf Ólafsdóttir áhrifavaldur geislar með óléttukúluna.

Guðrún Sortveit áhrifavaldur var glæsileg í rauðum pels um helgina.

Sonurinn skírður

Sonur Söndru Bjargar Helgadóttur og Hilmis Arnarssonar var skírður við fallega athöfn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Helgi Snær.

Bara gaman

Camilla Rut Rúnarsdóttir athafnakona segir lífið bara snúast um að hafa gaman.

Engar tannskemmdir

Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona var ekki með neinar skemmdir í tönnunum.

Gufa til að lifa af

Rapparinn Emmsjé Gauti telur niður dagana í tónleikana sína Jülevenner sem fara fram ÍR heimilinu næstu helgi.

„Eina sem ég veit er að þetta verður sturlun.“


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Brúðkaup í Rússlandi og hiti í desember

Jólaandinn svífur yfir stjörnum landsins og var skemmtanahaldið upp á sitt allra besta um helgina. Jólahlaðborð fyrirtækja, stórafmæli, tónleikar og almennur jólaundirbúningur setti sinn svip á vikuna sem leið. 

Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda

Aðventan nálgast óðfluga og virðast stjörnur landsins margar hverjar komnar í jólagírinn. Það var mikið líf í höfuðborginni um helgina þar sem stórtónleikar, kosningapartý, glæpasagnahátíð, afmæli og almennt fjör stóð upp úr. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.