Skoðun

Dýravelferð dýranna

Árni Alfreðsson skrifar

Mönnum er tíðtrætt um dýravelferð þessa dagana. Hvalveiðar eru eru ágætt dæmi um dýravelferð. Hvalirnir synda um höfin blá alla sína ævi. Örfáir fá skot í hnakkann og lang flestir deyja samstundis. Þeir örfáu sem lifa lengur eru aflífðaðir á nokkrum mínútum. Ef allt er eðlilegt.

Þetta var am.k. niðurstaða ítarlegustu rannsókn á dauðatíma langreyða sem fór fram sumarið 2014. Sérfræðingur í aflífun dýra/hvala fylgdist með veiðum úti á sjó og gerði ítarlega krufningu til að finna dánarorsök þegar í land var komið.

Niðurstaðan var að 84% hvalanna (42 dýr) drápust strax. Restina eða 16% (8 dýr) tók að meðaltali 8 mínútur að aflífa (6,5-15mín). Norðmenn eru með hrefnukvóta upp á 1200 dýr á ári. Þeir nota nákvæmlega sömu veiðiaðferðir og við Íslendingar. Eru með 80% dauðaskot skv. rannsóknum. Þeir telja þessar veiðar rúmast fullkomlega innan allra sjónarmiða um dýravelferð.

Veiðar á villtum dýrum verða aldrei fullkomnar eðli málsins samkvæmt. Allt bendir hins vegar til að aflífun hvala taki hvað stystan tíma. Borið t.a.m. saman við veiðar á hjartardýrum um víða veröld. Það fer hins vegar lítið fyrir andstæðingum þeirra veiða. Bara svo eitthvað sé nefnt.

Hérlendis froðufella dýravelferðarsinnar og fjölmiðlar þegar minnst er á hvalveiðar. Ég hefði meiri áhyggjur að velferð dýra sem alin eru upp í búrum eða við einhverjar framandi aðstæður. Svín eru örsjaldan nefnd í umræðunni. Sífelld smit og annað óárán herjar á búrdýr eins og kalkúna núna fyrir jól. Kjúklingar o.fl. dýr eru þar líka í flokki. Fyrir utan alla eldisfiskinn. Við þekkjum flest sýkingarnar og hreint dýraníð í þeim geira. En það telst ekki með. Enda bara fiskar. Enn ein hræsnin í þessum dýravelferðarmálum.

Mér finnst frábært að vita að lömbin lifi frjáls úti í náttúrunni sitt stutta líf. Líkt og hjartardýrin sem skotin eru í skógum allra landa. Reyndar misgömul. Að lifa frjáls úti í náttúrunni eru nefnilega forréttindi villtra dýra. Hvalirnir njóta þessarra forréttinda ásamt ótal mörgum öðrum dýrategundum sem jafnframt eru veidd til matar.

Með fullri virðingu fyrir fólki og fjölmiðlum sem þykjast berjast fyrir dýravelferð þá ætti þetta fólk aðeins að líta í spegil og spá í hvað dýravelferð þýðir í raun. Frekar en að beina spjótum sínum nánast eingöngu að hvalveiðum. Sem eru líklega þegar á botninn er hvolft mannúðlegustu veiðar á villtum dýrum sem menn þekkja til.

Höfundur er líffræðingur (á sviði hvala).




Skoðun

Sjá meira


×