Innlent

Gular við­varanir og vara­samt ferða­veður á Austur­landi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Viðvaranirnar taka gildi nú klukkan 08:00, fimmtudagsmorgun.
Viðvaranirnar taka gildi nú klukkan 08:00, fimmtudagsmorgun.

Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi klukkan átta fyrir hádegi í dag. Snjókoma, vindur og almennt slæmt veður til ferðalaga verður meginstefið í báðum landshlutum.

Viðvörunin á Austfjörðum gildir þar til klukkan fjögur aðfaranótt föstudags, en þar má búaast við norðan og síðan norðvestan 13 til 20 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi með versnandi færð.

Á Suðausturlandi verður viðvörun í gildi til klukkan fimm síðdegis í dag. Norðan 15 til 25 metrar á sekúndu, hvassast austan Öræfa þar sem búast má við staðbundnum vinhviðum yfir 35 metrum á sekúndu. Um varasamt ferðaveður er að ræða, samkvæmt vef Veðurstofunnar

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Norðan og norðvestan 5-15 m/s, hvassast austantil. Él á norðurhelmingi landsins, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Frost 1 til 8 stig.

Á laugardag:

Norðvestan 15-23 austanlands um morguninn og dálítil él, annars mun hægari og þurrt að kalla. Dregur síðan smám saman úr vindi fyrir austan og styttir upp. Frost 2 til 13 stig.

Á sunnudag:

Vaxandi sunnanátt og lítilsháttar væta, 13-23 m/s síðdegis og súld eða rigning, hvassast norðvestantil. Yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri, hiti víða 5 til 10 stig um kvöldið.

Á mánudag:

Sunnan- og suðvestanátt og vætusamt, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 5 til 13 stig. Kólnar síðdegis með skúrum eða éljum um landið vestanvert.

Á þriðjudag:

Suðvestanátt og él, en bjartviðri um landið austanvert. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum. Svalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×