Handbolti

Elín Rósa: Við náðum okkar helsta mark­miði

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Elín Rósa Magnúsdóttir í leiknum við Hollendinga, í frumraun sinni á EM.
Elín Rósa Magnúsdóttir í leiknum við Hollendinga, í frumraun sinni á EM. Getty/Henk Seppen

Elín Rósa Magnúsdóttir var að vonum svekkt eftir að íslenska landsliðið féll úr leik í kvöld gegn Þýskalandi. Lokatölur 19-30, en Elín Rósa lítur þó björtum augum á mótið í heild og á framtíð landsliðsins.

Aðspurð hvernig sér liði beint eftir leik hafði Elín Rósa þetta að segja.

„Ekkert sérstaklega vel sko, en það er margt gott sem hægt er að taka út úr þessu og þetta er bara hörku lið og voru bara betri í dag.“

Elín Rósa segir fátt hafa komið íslenska liðinu á óvart við spilamennsku þeirra þýsku í kvöld og segir heppnina ekki hafa verið með íslenska liðinu í liði í leiknum.

„Nei svo sem ekki sko. Þær náttúrulega keyra grimmt og við missum boltann svolítið. Líka bara óheppnar með skot þegar að við erum að spila sjö á sex. Elín Klara átti frábær skot, allavegana tvö, sem að hefðu alveg getað verið inni. En í staðinn fáum við mark í bakið sem er náttúrulega bara mjög súrt.“

Vörn þýska liðsins var firna sterk allan leikinn og áttu íslensku stelpurnar í erfiðleikum með að brjóta hana á bak aftur.

„Þær eru mjög stórar og sterkar og góðar einn á einn og eru góðar á stóru plássi. Við náðum samt alveg að komast í gegnum þær þegar boltinn fékk að rúlla en hann kannski stoppaði of oft. Það er erfitt að segja svona beint eftir leik.“

Elín Rósa gengur sátt frá borði eftir mótið þrátt fyrir vonbrigði kvöldsins.

„Við náðum okkar svona helsta markmiði að vinna fyrsta leikinn okkar á EM, sem er náttúrulega bara risastórt fyrir okkur. Stórt markmið sem við loksins náðum og hvað þá að vera hérna á EM. Úr því sem komið var þá langaði okkur í meira og við vorum ekkert saddar. En við erum ótrúlega stoltar af okkur og hvernig við komum inn í mótið.“

Aðspurð hvort liðið ætli sér ekki á næsta stórmót, þá stóð ekki á svörum.

„Bara hundrað prósent.“


Tengdar fréttir

Þórey Rósa leggur landsliðsskóna á hilluna

Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta landsleik fyrir Íslands hönd. Þessu greindi hún frá í samtali við íþróttadeild.

Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund

Ísland er fallið úr leik á Evrópumótinu í handbolta. Varð það ljóst eftir ellefu marka tap gegn Þýskalandi í úrslitaleik um hvort liðið færi áfram í milliriðla. Lokatölur 19-30 þar sem íslensku stelpurnar áttu við ramman reip að draga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×