Innlent

Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólar­hring

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Seyðisfirði þar sem var frost í gær en nú er hiti kominn yfir frostmark.
Frá Seyðisfirði þar sem var frost í gær en nú er hiti kominn yfir frostmark. Lögreglan á Austurlandi

Hitabreytingar voru með mesta móti á Austfjörðum í gær. Hitinn fór sem dæmi úr -23,6 gráðum í Möðrudal á Fjöllum í gærmorgun yfir í -0,4 gráður klukkan níu í morgun.

Austurfrétt vekur athygli á sviptingum í veðri og vísar til mælinga á þremur veðurstöðvum á Austurlandi. Stærsta stökkið á einni klukkustund mældist á Brú á Jökuldal í gærkvöldi þegar hitinn fór úr -15,8 gráðum upp í -4,8 gráður frá klukkan 21 til 22.

Frostið var undir tíu gráðum víðast hvar á Austfjörðum í gær. Vindátt snerist í gær til suðausturs og er hiti á svæðinu víðast hvar yfir frostmarki í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×