Innlent

Miklar gleði­fréttir og gott að fá nem­endur og starfs­fólk aftur í hús

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Soffía Sveinsdóttir er skólameistari FSu.
Soffía Sveinsdóttir er skólameistari FSu. Vísir

Soffía Sveinsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla suðurlands, segir miklar gleðifréttir að verkfalli kennara hafi verið frestað. Verkfall hefur staðið yfir í skólanum síðan 29. október. Kennsla hefst á ný á þriðjudaginn og mun standa yfir til 20. desember.

„Þetta bar mjög brátt að og hlutirnir gerðust mjög hratt í dag. Þetta var algjör rússíbani,“ segir Soffía.

Verkfallið stóð yfir í um fjóra og hálfa viku, og í FSu féllu 24 kennsludagar niður.

Hún segir að búið sé að gera drög að skóladagatali út önnina, en kennarar muni hittast á mánudaginn og skipuleggja framhaldið betur. Kennsla mun standa yfir til 20. desember, en áður en til verkfallsins kom átti kennslu að vera lokið 11. desember.

Soffía segir að kennarar þurfi nú að endurskoða námsmat og annað slíkt. Kennslunni og önninni ljúki fyrir jól.

 „Það verða ekki jólapróf en við erum með tvo námsmatsdaga sem færast fram í janúar. Það eru mjög margir með símat, það er kannski ágætt að það skuli vera svona fáir prófdagar,“ segir hún.

Ekkert ljóst hvað brottfall nemenda varðar

„Ég hef enga hugmynd um brottfall nemenda. Það hefur ekki komið mikið á okkar borð á skrifstofunni að nemendur séu að hætta,“ segir Soffía.

Skólinn muni í næstu viku kalla eftir því að fólk láti vita, séu þau hætt í skólanum. Þá muni það liggja fyrir hversu margir hafi hætt.

„Ég veit alveg að það eru einhverjir nemendur sem fóru að vinna, en hvort það var bara tímabundið eða ekki veit ég ekki. Ég veit til dæmis að rafvirkjanemendur fengu vinnur, en ég veit ekki hvað gerist núna,“ segir hún.

„Vonandi skila sér sem allra flestir til baka.“


Tengdar fréttir

„Eins og við séum gleymd, bara ein­hver skóli úti á landi“

Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×