Innlent

Ekkert D-vítamín í kæstum há­karli

Jakob Bjarnar skrifar
Baldvin hélt því fram að hákarl væri fullur af D-vítamíni en var snarlega leiðréttur með það af Hlédísi Sveinsdóttur. Hún segir ekkert D-vítamín í kæstum hákarli en hins vegar sé þar að finna línólsýru sem er merkt með bókstafnum C. 
Baldvin hélt því fram að hákarl væri fullur af D-vítamíni en var snarlega leiðréttur með það af Hlédísi Sveinsdóttur. Hún segir ekkert D-vítamín í kæstum hákarli en hins vegar sé þar að finna línólsýru sem er merkt með bókstafnum C.  vísir/vilhelm/facebook

Baldvin Jónsson, tengdafaðir Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, heldur uppteknum hætti á Facebook og boðaðar nú hákarlaát og segir að í honum sé mikið D-vítamín. Því er hins vegar haldið fram, á móti, að svo sé hreint ekki.

Baldvin og D-vítamínið sem hann hefur verið að boða hefur þegar komið Degi B. Eggertssyni í bobba en í gær greindi Vísir frá því að Lúðvík Lúðvíksson nokkur hafi kært Dag til héraðssaksóknara fyrir ummæli sem hann lét falla á síðu Baldvins.

Baldvin heldur sig við D-vítamínið í nýlegri færslu en þar segir hann:

„Ekki gleyma því að það er mikið D vítamín í hákarli. Fékk sendingu að vestan. XD“

Svo mörg voru þau orð, ekki þarf bókmenntafræðing til að átta sig á því hvað felst í þessum skilaboðum. En er D-vítamín í hákarli? Baldvin virðist hafa teygt sig of langt því ekki segir Hlédís Sveinsdóttir. Hún skrifar athugasemd við þessi skilaboð Baldvins.

„Það er reyndar ekkert D-vítamín í kæstum hákarli en fyrstu 4 innihaldsefnin eru Línólsýra sem er C merkt. Verði þér að góðu,“ skrifar Hlédís og blikkar Baldvin. En C er bókstafur Viðreisnar. Hlédís lætur fylgja heimild fyrir þessu sem má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×