Innlent

Ekki rétt að nefndin hafi boðað auka­fund til að hækka vexti

Árni Sæberg skrifar
Ásgeir Jónsson er formaður peningastefnunefndar og Finnbjörn er formaður ASÍ.
Ásgeir Jónsson er formaður peningastefnunefndar og Finnbjörn er formaður ASÍ. Vísir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að hann vildi að peningastefnunefnd kæmi saman og lækkaði stýrivexti í ljósi þess að verðbólga hjaðnaði milli mánaða.

Hjöðnunin var þó minni á milli mánaða en viðskiptabankarnir höfðu spáð og að sögn greiningardeildar Landsbankans er aðhald Seðlabankans raunar minna nú en fyrir síðasta fund peningastefnunefndar.

Ekki rétt

Finnbjörn vildi ekki tjá sig um það hvort hann sé bjartsýnn á að Seðlabankinn verði við ákalli um aukafund. En hann sagði það vissulega ekki algengt að boðað sé til slíkra funda.

„Þeir hafa gert það þegar þeir hafa þurft að hækka vexti. Þeir eru seinni til þegar kemur að lækkunum.“ 

Að sögn Stefáns Jóhanns Stefánsson, ritstjóra Seðlabankans, er það hreinlega rangt. Nefndin hafi aldri komið saman til að hækka stýrivexti.

Nokkrir aukafundir í Covid

Aukafundir hafi verið boðaður í fáein skipti, til að mynda árið 2009. Nefndin hafi síðast komið saman á aukafundum í miðjum heimsfaraldri Covid-19 árið 2020, alls fjórum sinnum. 

Á einum þeirra hafi vextir verið lækkaðir, á öðrum tilkynnt um magnbundna íhlutun, á þriðja hafi verið tilkynnt um sérstaka lánafyrirgreiðslu (útvíkkun veðlistans) tengt tilmælum fjármálastöðugleikanefndar og á fjórða hafi verið sameiginleg yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar og peningastefnunefndar um tímabundna veðlánarammann.


Tengdar fréttir

Gæti reynst „lang­hlaup“ að koma verðbólgunni alla leið niður í mark­mið

Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári.

Verðbólgan komin undir fimm prósent

Verðbólga mælist nú 4,8 prósent og hefur ekki verið minni síðan í október árið 2021. Hún hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×