Upp­gjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal

Hinrik Wöhler skrifar
Hafnfirðingar fagna eins marks sigri í Úlfarsárdal í kvöld.
Hafnfirðingar fagna eins marks sigri í Úlfarsárdal í kvöld. Vísir/Anton Brink

Fram tók á móti FH í 12. umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld og réðust úrslitin á síðustu andartökum leiksins. Leikurinn endaði 30-29 fyrir FH en Framarar voru með yfirhöndina framan af og leiddu um tíma með fimm mörkum í síðari hálfleik.

Leikurinn fór rólega af stað og ekki var mikið um markaskorun í upphafi leiks. Sóknarleikurinn liðanna var ekki upp á marga fiska og enduðu flestar sóknir með misheppnuðum skottilraunum en staðan var 6-5 fyrir Hafnfirðingum þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður.

Reynir Þór Stefánsson leiddi sóknarleik Framara í kvöld.Vísir/Anton Brink

Í kjölfarið fóru liðin að keyra upp hraðann og þá kviknaði á Þorsteini Gauta Hjálmarssyni í liði Fram. Skyttan skoraði sex mörk á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks og tóku heimamenn yfirhöndina á leiknum.

Þökk sé þessari sýningu hjá finnska landsliðsmanninum, Þorsteini Gauta, leiddu heimamenn með tveimur mörkum í hálfleik, 16-14. Þorsteinn Gauti og Reynir Þór Stefánsson voru allt í öllu í sóknarleik Fram en þeir skoruðu samtals 13 mörk í fyrri hálfleik.

Reynir Þór hélt uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks í liði Fram og komust heimamenn fljótt í fimm marka forystu.

Um miðbik síðari hálfleiks breyttu Hafnfirðingar um vörn og mættu Frömurum framar í fimm-einn vörn. Þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá heimamönnum en sóknarleikur Fram hökti og Birkir Fannar Bragason kom sterkur inn milli stanganna hjá FH.

Framarar náðu að halda FH-ingum í skefjum en það var ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins sem FH náði að jafna í 29-29. Framarar töpuðu boltanum í sinni síðustu sókn og Jakob Martin Ásgeirsson tryggði Hafnfirðingum sigur með marki úr hraðaupphlaupi á síðustu andartökum leiksins.

Hafnfirðingar fagna dramatískum sigri.Vísir/Anton Brink

Grátlegt tap fyrir Framara en Hafnfirðingar fóru sigurreifir úr Úlfarsárdal og tryggðu stöðu sína enn frekar á toppi deildarinnar.

Atvik leiksins

Úrslitin réðust þegar Framarar fóru illa að ráði sínu undir lok leiks en Marel Baldvinsson tapaði boltanum klaufalega. Jakob Martin Ásgeirsson komst inn í sendinguna frá honum og geystist upp völlinn og afgreiddi færið snyrtilega.

Stjörnur og skúrkar

Birkir Fannar Bragason reið baggamuninn fyrir FH-inga undir lok leiks. Hann kom inn á markið um miðbik síðari hálfleiks og var með hátt í 60% markvörslu.

Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu í sóknarleik Fram og skoraði tíu mörk ásamt því að fiska fjögur víti.

Það sást lítið til Rúnars Kárasonar í liði Fram en stórskyttan var með eitt mark úr fimm skotum. Marel Baldvinsson gerði slæm mistök í síðustu sókn Fram þegar hann gaf boltann á mótherjana en leikmaðurinn ungi hafði átt góðan leik fram af því.

Dómarar

Nafnarnir Ómar Ingi Sverrisson og Ómar Örn Jónsson sáu um dómgæsluna í kvöld. Þjálfarar beggja liða voru duglegir að senda tvíeykinu ábendingar um hvað mætti betur fara. Þeir héldu þó ágætri línu í gegnum leikinn þrátt fyrir vafasama dóma einstöku sinnum.

Stemning og umgjörð

Það var ekki margt um manninn í Lambhagahöllinni í kvöld og mætingin var dræm, sérstaklega í ljósi þess að liðin tvö eru berjast á toppi deildarinnar.

Stúkan lifnaði þó við undir lok leiks þegar dramatíkin var sem mest og heyrðist vel í fámennum áhorfendaskaranum.

Viðtöl

Sigursteinn: „Það var nóg á tanknum“

Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, kemur skilaboðum áleiðis á hliðarlínunni í kvöld.Vísir/Anton Brink

Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var glaðbeittur eftir dramatískan sigur á móti Fram í Úlfarsárdal í kvöld.

„Mér fannst við vera afspyrnuslakir varnarlega, bara á rosalega stórum pörtum leiksins. Svo vil ég bara segja að mér liðið „kicka“ inn og við breytum aðeins til og förum í fimm-einn. Jakob [Martin Ásgeirsson] var frábær fyrir framan, Birkir [Fannar Bragason] kemur frábær í markið og Ólafur Gústafsson kom með góða innkomu,“ sagði Sigursteinn eftir sigurleikinn í kvöld.

Það voru engin þreytumerki að sjá á FH-ingum í kvöld þrátt fyrir Evrópuleik síðasta þriðjudag þar sem liðið tapaði á móti Fenix Toulouse. Sigursteinn var sáttur með líkamlegt ástand og kraftinn hjá sínum mönnum í kvöld.

„Mér fannst gaman að sjá úr því prógrammi sem við erum að koma, mér fannst við vera í flottu standi og það var nóg á tanknum.“

Sigursteinn var líflegur á hliðarlínunni að vanda en dómarar leiksins þurftu að veita honum tiltal nokkrum sinnum í leiknum.

„Augljóslega voru atriði sem ég var ósáttur við og þú getur örugglega fundið eitthvað svipað hinum megin hjá Frömurum. Mér fannst þetta stór atriði en ég nenni ekki að pæla í því, við unnum og ég er hrikalega ánægður með það,“ sagði Sigursteinn þegar hann var spurður út í dómgæsluna.

Hafnfirðingar eru á toppi deildarinnar með 19 stig eftir 12 umferðir. Sigursteinn sér bætingu á leik sinna manna en bendir jafnframt á sterkan karakter hjá leikmönnum liðsins.

„Fyrst og síðast ánægður. Mér finnst spilamennskan vera að batna síðustu vikur og mánuði. Ég er ánægður með það og einnig karakterinn í kvöld frekar en einhver stórkostleg spilamennska. Mér fannst karakter að loka þessu á réttum mómentum,“ sagði Sigursteinn að endingu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira