Handbolti

Ekki eins „starstruck“ og í fyrra

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jóhanna Margrét í leik með íslenska landsliðinu.
Jóhanna Margrét í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Getty

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, er mætt á sitt annað stórmót með landsliðinu eftir að hafa farið á HM í Noregi og Danmörku í fyrra. Hún er ásamt stórum hluta liðsins, reynslunni ríkari fyrir komandi átök á EM í Innsbruck.

„Það hefur bara gengið mjög vel. Góður undirbúningur og allt mjög gaman. Það er alltaf geggjað að vera kominn á stórmót,“ segir Jóhanna í samtali við íþróttadeild. Allt sé til alls og aðstæður góðar.

„Aðstæðurnar eru mjög fínar. Það er hugsað vel um okkur, þetta er fínasta hótel og góður matur og svona. Við erum bara sáttar.“

Klippa: Jóhanna Margrét spennt fyrir fyrsta leik á EM

Jóhanna segir þá liðið hafa lært mikið af síðasta móti. Hún sjálf fái þá ekki eins miklar stjörnur í augun við að sjá bestu handboltakonur heims í þetta skiptið.

„Við vitum meira hvað við erum að fara út í núna. Það var fínt að fara á HM til að kynna okkur þetta og þá er maður ekki alveg jafn starstruck að sjá aðra leikmenn og svona. Það er mikið sem við getum tekið með okkur,“ segir Jóhanna Margrét.

Holland er fyrsta verkefnið en leikurinn er klukkan 17:00 á morgun. Um er að ræða ærið verkefni gegn liði sem er á meðal þeirra allra bestu í heimi.

„Þetta er mjög spennandi og vonandi að við getum strítt þeim svolítið. Þetta er mjög sterkt lið með háklassa leikmenn og lið sem vill keyra mikið. Við þurfum að stoppa það og vera tilbúnar,“ segir Jóhanna Margrét en viðtalið við hana má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys

Landsliðskonan Steinunn Björnsdóttir er mætt á sitt fyrsta stórmót í handbolta en Ísland mætir Hollandi í fyrsta leik á morgun. Frumraunin var hins vegar í hættu um tíma, af óvenjulegri ástæðu.

Skrýtið en venst

Finna má eftirvæntingu í íslenska landsliðshópnum sem hefur keppni á EM kvenna í handbolta á föstudaginn kemur. Liðið hefur komið sér vel fyrir í Ólympíubænum Innsbruck þar sem herlegheitin fara fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×