Erlent

Rússar gera um­fangs­miklar á­rásir á orkuinnviði Úkraínu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Háværar sprengingar hafa heyrst í Odessa í morgun.
Háværar sprengingar hafa heyrst í Odessa í morgun. AP/Almannavarnir í Úkraínu

Rússar hafa gert harðar og umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu í nótt.

Orkumálaráðherra landsins segir að árásir hafi verið tilkynntar vítt og breytt um landið og að víða sé nú rafmagnslaust. 

Hann hvatti fólk einnig til þess að leita skjóls og snemma í morgun gaf flugher Úkraínu út allsherjar viðvörun fyrir allt landið þar sem von væri á fleiri eldflaugum. 

Á síðustu dögum hafa Rússar gert um það bil 1.500 loftárásir í Úkraínu. 

Borgarstjóri Kharkív, Igor Terekhov, segir að einnig hafi verið ráðist á íbúðahverfi í borginni í nótt og þá berast fregnir af hörðum árásum í borginni Lutsk sem er að stórum hluta án rafmagns. 

Hafnarborgin Odessa var heldur ekki undanskilin en þar hafa heyrst háværar sprengingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×