Viðskipti innlent

Helena til Íslandssjóða

Árni Sæberg skrifar
Helena hefur mikla reynslu af sjálfbærnimálum.
Helena hefur mikla reynslu af sjálfbærnimálum. Íslandssjóðir

Helena Guðjónsdóttir hefur verið ráðin til að leiða viðskiptaþróun og sjálfbærni fyrir Íslandssjóði.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Helena hafi mikla reynslu af sjálfbærni í fjármálageiranum en hún hafi undanfarin ár starfaði við sjálfbærnimál bæði hjá Kviku eignastýringu og Kviku banka en þar á undan, á árunum 2012 til 2020, hafi hún starfað hjá bresku verslunarkeðjunni Hamleys í Bretlandi og Tékklandi.

Helena sé með B.A. gráðu í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Goldsmiths University of London og MBA gráðu frá IESE Business School í Barcelona með áherslu á sjálfbær fjármál og stefnumótun fyrirtækja. Hún sitji í stjórn IcelandSIF og leiði miðlunarhóp samtakanna. Hún hafi einnig unnið með The Sustainability Board, sem vinni að því að efla leiðtoga á sviði sjálfbærni og stuðla að góðum stjórnarháttum fyrirtækja.

Spennandi tímar fram undan

„Það er mjög ánægjulegt að taka á móti Helenu inn í okkar öfluga lið og í mínum huga er ljóst að fjölbreytt reynsla og menntun Helenu muni nýtast félaginu afar vel á þeim spennandi tímum sem fram undan eru. Mikil þróun hefur verið á málum sem tengjast sjálfbærni á fjármálamarkaði og áhugi viðskiptavina okkar er sífellt að aukast þegar kemur að ábyrgum fjárfestingum. Því er mikilvægt að öflugt og reynslumikið fólk standi að þróun góðra fjárfestingarkosta fyrir viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Kjartani Smára Höskuldssyni, framkvæmdastjóra Íslandssjóða.

Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, er elsta sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema um 345 milljörðum króna og yfir 12.000 sparifjáreigendur og fjárfestar ávaxta eignir sínar í sjóðum félagsins. Félagið starfrækir úrval skuldabréfasjóða, hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða. Íslandssjóðir hafa auk þess sérhæft sig í fasteignasjóðum og framtakssjóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×