Innlent

Tíðinda­lítil nótt á gos­stöðvunum en varað við gasmengun

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gosið mallar áfram.
Gosið mallar áfram. Vísir/Vilhelm

Nóttin var tíðindalítil á gosstöðvunum, samkvæmt náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. 

Gosið heldur áfram jöfnum krafti og gosórói hefur haldist stöðugur síðasta sólarhringinn.

Hraunstraumurinn flæðir enn til austurs í átt að Fagradalsfjalli en samkvæmt gasdreifingarlíkani má gera ráð fyrir að mengunar frá gosstöðvunum gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu.

Hér má finna upplýsingar um loftgæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×