Erlent

SpaceX skýtur kjarn­orku­knúnum dróna út í geim

Samúel Karl Ólason skrifar
Tölvuteiknuð mynd sem sýnir hvernig Dragonfly gæti litið út.
Tölvuteiknuð mynd sem sýnir hvernig Dragonfly gæti litið út. NASA/Johns Hopkins APL/Steve Gribben

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa samið við SpaceX um að senda kjarnorkuknúið könnunarfar af stað til tunglsins Títan, sem er á braut um Satúrnus, árið 2028. Skjóta á Dragonfly-þyrludrónanum á loft með Falcon Heavy eldflaug SpaceX en ferðin sjálf mun taka sex ár.

Dragonfly er kjarnorkuknúinn þyrludróni sem verður á stærð við lítinn bíl og á hann að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs á Títan.

Upprunalega stóð til að skjóta Dragonfly af stað árið 2026 en nú á að skjóta geimfarinu á loft þann 25. júlí 2028 og er vonast til þess að Dragonfly lendi á Títan árið 2034.

Sjá einnig: Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan

Títan er stærsta tungl Satúrnusar og næst stærsta tungl sólkerfisins. Það er einnig eina tungl sólkerfisins sem hefur þykkt andrúmsloft. Vegna þessa og vegna þess að þyngdarkrafturinn þar er tiltölulega lítill þykir notkun þyrludróna sérstaklega hentug.

Ekki er þó hægt að reiða á sólarorku á Títan, vegna þykktar andrúmsloftsins og þarf dróninn því að vera kjarnorkuknúinn.

Títan er einnig eini hnötturinn í sólkerfinu, fyrir utan jörðina, þar sem vitað er til þess að finna megi vökva á yfirborðinu og er talið að finna megið mikið af vatni í fljótandi formi undir yfirborði tunglsins.

Kostnaður langt umfram áætlanir

Þróun og smíði Drekaflugunnar er á höndum verkfræðinga Johns Hopkins Applied Physics Laboratory (APL) í Bandaríkjunum, sem vinna náið með vísindamönnum NASA. Fleiri fyrirtæki og stofnanir koma einnig að verkefninu og má þar meðal annars nefna Lockheed Martin, Ames Research Center, Jet Propulsion Laboratory, CNES í Frakklandi, DLR í Þýskalandi, JAXA í Japan og fleiri.

Í frétt SpaceNews segir að Dragonfly verkefnið hafi staðist endurskoðun í apríl en þá hafi þó komið í ljós að kostnaður við það hafi farið langt fram úr áætlunum. Áætlaður kostnaður fyrir verkefnið var þó kominn í 3,35 milljarða dala.

Forsvarsmenn NASA sögðu að rekja mætti hækkunina til að nokkurra ástæðna. Þeirra á meðal eru tafir sem hafa orðið á verkefninu og hækkaði kostnaður við bæði vinnu og aðföng vegna faraldurs Covid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×