Körfubolti

Áður ó­birt efni frá heim­sókn lands­liðsins í vin­sælasta þátt Banda­ríkjanna

Sindri Sverrisson skrifar
Íslenska landsliðið fékk að koma upp á svið hjá sjálfum Ed Sullivan í eftirminnilegri ferð fyrir 50 árum síðan.
Íslenska landsliðið fékk að koma upp á svið hjá sjálfum Ed Sullivan í eftirminnilegri ferð fyrir 50 árum síðan. Kaninn

Í fyrsta þætti Kanans í kvöld verður í fyrsta sinn í íslensku sjónvarpi sýnt frá því þegar íslenskir landsliðsmenn í körfubolta voru heiðursgestir í þætti Ed Sullivan árið 1964, langvinsælasta skemmtiþætti Bandaríkjanna á þeim tíma.

Heimildaþáttaröðin Kaninn verður frumsýnd í kvöld á Stöð 2 og Stöð 2 Sport. Í þessum fyrsta þætti er farið tæp 50 ár aftur í tímann þegar fyrstu Kanarnir komu hingað til lands til að leika körfubolta að atvinnu og ævintýralegar frásagnir af þessum frumherjum rifjaðar upp.

En tengsl Bandaríkjanna og íslensks körfubolta ná lengra aftur enda Bandaríkin vagga íþróttarinnar. Í þætti kvöldsins er rifjuð upp eftirminnileg æfinga- og keppnisferð íslenska landsliðsins til Bandaríkjanna undir lok árs 1964 en þangað var liðinu boðið af bandaríska íþróttasambandinu til að spreyta sig meðal annars gegn háskólaliðum vestanhafs.

„Fyrir okkur auðvitað algjört ævintýri”

Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson, leikmenn KR á þeim tíma, voru meðal leikmanna sem voru valdir til ferðarinnar og lýsa henni sem miklu ævintýri. Þeir voru meðal heiðurgesta á leik hjá Boston Celtics og heilsuðu þar áhorfendum í hálfleik en lið Boston var stórveldi NBA-deildarinnar þessi árin undir leiðsögn goðsagnarinnar Red Auerbach með miðherjann Bill Russell fremstan í flokki. Enda eru Einar og Kolbeinn báðir annálaðir Celtics-menn eftir þessa ferð. 

Þá heimsótti hópurinn Hvíta húsið en eftirminnilegust var sennilega ferð hópsins í Ed Sullivan Theater á Manhattan. Þar voru þeir heiðurgestir við upptöku á þætti Ed Sullivan og kynnti hann hópinn sérstaklega undir lófaklappi áhorfenda. 

Ed Sullivan var á þessum tíma langsamlega vinsælasti sjónvarpsþáttur Bandaríkjanna og tugir milljóna Bandaríkjamanna horfðu á þáttinn hverju sinni. Stærstu stjörnur þess tíma komu þar fram og skemmst að minnast fyrstu framkomu Bítlanna við komuna til Bandaríkjanna þetta sama ár. 

Margir hafa heyrt sögurnar af þessari uppákomu en myndskeiðið af landsliðinu í Ed Sullivan hefur aldrei áður verið sýnt hér á landi svo vitað sé. En kynningu Sullivan á liðinu má sjá í meðfylgjandi myndskeiði úr þættinum.

Hittu Supremes

Þátturinn var sendur út þann 27. desember 1964 og fór síðar í sögubækurnar fyrir þá staðreynd að þar steig kvennasveitin Supremes í fyrsta sinn á stokk í bandarísku sjónvarpi.

„Eftir showið var okkur boðið upp á svið til að taka auðvitað mynd af okkur með Ed Sullivan og fengum að heilsa upp á Díönu Ross og Supremes. Og við vorum margir sem þvoðum okkur ekki um hendurnar í marga daga eftir að vera búnir að heilsa upp á þær. Þetta var algjört ævintýri,“ segir Einar í þætti kvöldsins.

Fyrsti þáttur af Kananum fer í loftið klukkan 19 í kvöld á Stöð 2 og klukkan 20 á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×