Tíska og hönnun

Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Margar af best klæddu skvísum landsins komu saman í opnun Spúútnik.
Margar af best klæddu skvísum landsins komu saman í opnun Spúútnik. Saga Sig

Það var sannkölluð skvísustemning í opnunarteiti nýrrar og betrumbættar verslunar Spúútnik Reykjavík í Kringlunni síðastliðið fimmtudagskvöld. Meðal gesta voru Heiður Ósk eigandi Reykjavík MakeUp School, þjálfarinn Gerða kennd við InShape, Elísabet Gunnars áhrifavaldur og athafnakona, Kolbrún Anna förðunarfræðingur, fyrirsæturnar Nadía Áróra og Helga Þóra og svo lengi mætti telja. 

Verslunin, sem er nú tvöfalt stærri, er staðsett á þriðju hæð Kringlunnar og opnaði svo með látum fyrir almenningi síðastliðinn föstudag. 

„Í tilefni af opnuninni vildum við auðvitað fagna þeim áfanga og að sama skapi nýta tækifærið til þess að líta yfir þróun Spúútnik og huga að því sem sker okkur úr frá öðrum fataverslunum. Því var mikil áhersla hjá okkur að vinna að herferðinni „Spúútnik Lifestyle“ samhliða opnuninni. 

Við unnum þessa herferð með ljósmyndaranum Sögu Sig og myndirnar fanga þá orku og það andrúmsloft sem er í Spúútnik. Við frumsýndum „Spúútnik Lifestyle“ á opnunarkvöldinu og þetta byggist á innblæstri frá viðskiptavinunum okkar. Spúútnik hefur orðið hluti af daglegu lífi þeirra og þessi Spúútnik lífsstíll er einmitt það sem gerir búðina að einstökum stað,“ segir í fréttatilkynningu. 

DJ Anna María þeytti skífum og ljósmyndarinn Saga Sig var á svæðinu og greip þessi glæsilegu augnablik: 

Fatahönnuðurinn Rubina Singh Arnoddsdóttir sem er jafnframt í markaðsstjórn Spúútnik.Saga Sig
Inga Ævarsdóttir stílisti var í góðum gír.Saga Sig
Sigurbjörg Birta verslunarstjóri í Spúútnik Kringlunni.Saga Sig
Stella Björt rekstrarstjóri Spúútnik.Saga Sig
Vaka Tómasdóttir.Saga Sig
Spúútnik fjölskyldan saman komin!Saga Sig
Hekla Gaja og Rubina eru saman í markaðsstjórn Spúútnik.Saga Sig
Elísabet Gunnars og Rósa María.Saga Sig
Endurbætt verslun Spúútnik er með alls kyns úrval!Saga Sig
Sóllilja og Ingibjörg.Saga Sig
Strákarnir í Fly South Creative Studio.Saga Sig
DJ Anna María þeytti skífum.Saga Sig
Rapparinn Issi lét sig ekki vanta.Saga Sig
Heiður Ósk og Gerða In Shape.Saga Sig
Hönnuðurinn Bosk sem er þekkt fyrir einstakar töskur sínar eins og þessa grænu.Saga Sig
Kalda skvísurnar mættu í teitið.Saga Sig
Rapparinn Elvar.Saga Sig
Þessi voru í flottum fittum.Saga Sig
Una Schram tónlistarkona.Saga Sig
Ragnheiður, Vaka og Karin.Saga Sig
Flottar!Saga Sig
Brosin leyndu sér ekki í opnunarteitinu.Saga Sig
Skvísur í loðfeldum.Saga Sig
Gestir rokkuðu sín flottustu lúkk.Saga Sig
Gallaefnið er tímalaust.Saga Sig
Rapparinn Daniil spennti vöðvana.Saga Sig
Skvís!Saga Sig
Algjörar gellur!Saga Sig
Enok mætti á svæðið.Saga Sig
Fatahönnuðurinn Stella Michigo.Saga Sig
Trylltur klæðaburður hér á ferð!Saga Sig
Kærustuparið Sammi og Þura en Þura er nafna og barnabarn Þuru eiganda Spúútnik.Saga Sig
Töffari!Saga Sig
Þuríður Hauksdóttir eigandi Spúútnik og barnabarn hennar Líf Helgadóttir.Saga Sig
Kolbrún Anna Vignisdóttir tískudrottning.Saga Sig
Ragnheiður Anna alltaf glæsileg til fara.Saga Sig
Þura og Rubina.Saga Sig
Pétur Kiernan eigandi Metta.Saga Sig
Töffarar.Saga Sig
Nadía Áróra var í góðum félagsskap.Saga Sig





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.